Ég held að þegar við deyjum verður allt eins og áður en við fæddumst, þ.e. við skynjum ekki neitt, vitum ekki neitt og munum ekki neitt. “Sálin” og “sjálfið” er allt í heilanum, án heilans ertu bara dauður líkami. Ef þú missir hönd ertu ekkert minna þú sjálfur, en ef þú missir heilann þá ertu ekki þú sjálfur lengur, þú ert alveg dauður. Ég trúi ekki að það séu til einhverjar ódauðlegar sálir, heldur er hægt að útskýra allt með því að skoða heilann, en hann er allt of flókinn fyrir manneskjur...