ég var í sundi með vinkonu minni og ég var úti í pottinum á meðan að vinkona mín var að tala við einhverja krakka inní laug, ég lá bara og horfði út í loftið og var bara eitthvað að hugsa, en allt í einu sé ég stjönuhrap!(ógeðslega flott!) svo annað, og annað, og annað.Ég hlít bara að hafa séð 15 stjörnuhröp.Allt í einu fannst mér eins og einhver væri að horfa á mig!mér fannst gamall maður sitja í pottinum hjá mér, það var svo dökkklæddur maður á þakinu sem hljóp svo í burtu þegar að ég leit þangað, ég kallaði á vinkonu mína, hún sá ekki stjörnuhröpin, ekki gamla manninn og ekki kallinn á þakinu, var þetta bara ímyndun eða…?