Þetta er örlítil samantekt á því sem ég hef lært um svarthol, eins konar svar við greininni: ,,Svarthol - veit einhver hvað það er ??" Stjarna verður til Stjarna verður til þegar efni (aðallega vetni) í geimnum dregst saman vegna innbyrðis þyngdarafls. Því meira sem efnið dregst saman því algengari verða árekstrar á milli efniseinda og hraði þeirra eykst þar að auki. Þetta veldur auknum hita. Eftir nógu langan tíma er hitinn orðinn það mikill að þegar eindirnar rekast saman þá renna þær...