Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Nýr korkur (3 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Hér er risinn nýr korkur sérstaklega ætlaður 6. bókinni og öllu sem henni tilheyrir. Margir hugarar vilja ekkert heyra um bókina sem í vændum er hvorki vangaveltur lesenda né staðreyndir frá höfundi. Ég vil því biðja hugara að passa sig að láta ekki korkana bera heiti sem kjafta of mikið frá til þeirra sem gætu rekið augun í þetta á forsíðunni. Kveðja Tzipporah p.s. ég eyddi t.d. út þræði á gamla korkinum sem hét “hver deyr í 6. bókinni?” það er eitthvað sem ekki allir vilja sjá. Fólk vill...

Varðandi könnunina (21 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 4 mánuðum
He he he… Fantasia, við Remus erum að vinna ykkur Severus ;P Kveðja Tzipporah

Hvar??? (8 álit)

í Hátíðir fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Hvað varð um jólagaurinn á Bústaðaveginum? Ég ætlaði að sýna stelpunni minni jólaljósin og treysti bara á að jólabarn Reykjavíkur væri búinn að setja sína sýningu á laggirnar en þá blasti bara við okkur dimmur og drungalegur húsagarður. Ég var alveg niðurbrotin sál… Hvar ertu jólagaur? Ertu farinn eða ertu bara ekki byrjaður í ár? Tzipporah

Málfrelsi - ritfrelsi ? (13 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Mér finnst ég aðeins verða að koma með smá pistil hér í ljósi þeirra umræðna sem hafa verið hér á korkinum að undanförnu. Það er alls ekki mál- eða ritfrelsi hér á huga. Hér fer fram gífurleg ritskoðun enda án hennar er ekki hægt að halda uppi svona síðu. Mörg spjallborð hafa lagt upp laupana einmitt vegna svona endalausra rifrilda sem enginn getur stöðvað. Til að halda uppi góðu spjallborði verða adminar að stöðva svona hegðun og notendur verða að gæta að sér og gera sitt besta til að halda...

Marauders map (3 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég er að þróa kenningu og mig vantar smá upplýsingar til að ljúka henni. Veit einhver hvort að það er hægt að sjá “The maruaders map” einhversstaðar á netinu? Þá meina ég eitthvað sem Rowling er búin að samþykkja. Ég hef hreinlega ekki gert mér far um að leita að því á síðunni hennar, er þó búin að leita á fleiri stöðum. Síðan hennar Rowling finnst mér bara arfaleiðinleg og erfitt að leita á henni. Ef einhver hefur séð kortið þá brennur þessi spurning á mér: Veit einhver hvað er neðst á því...

Óska eftir athygli ykkar ;o) (8 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Sælir kæru hugara, áhugaspunahöfundar og aðrir. Ég vildi bara fá að vekja athygli ykkar á þessum nýja korki sem ætlaður er sérstaklega fyrir umræður um áhugaspuna og annað tengt þeim. Hér má birta spuna sem ekki komast inn á greinakubbinn, ræða um spuna, ræða hugmyndir að spunum, auglýsa eftir yfirlesurum og fleira sem ykkur dettur í hug og er tengt áhugaspunum. Einnig vildi ég vekja athygli ykkar á boðorðunum 10 fyrir áhugaspunahöfunda sem finna má neðst á síðunni okkar. Kveðja Tzipporah

www.stopp.is (1 álit)

í Hundar fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Langaði bara að benda ykkur á nýja heimasíðu sem var að opna í morgun. Heimasíða sem enginn dýraverndunarsinni á íslandi má láta fram hjá sér fara. www.stopp.is

Disappointed!!! (spoiler á mynd 3) (25 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég fór loksins að sjá Harry Potter and the prisoner of Azkaban í dag og svo ég noti orð Ottos í “A fish called Wanda” I am DISAPPOINTED! Hryllega mikið af fáránlegum staðreyndavillum og afbökunum á bestu bókinni sem Rowling hefur skrifað hingað til. Ég er vægast sagt frekar pirruð út í WB og jafnvel enn pirraðari út í Rowling fyrir að láta þá komast upp með þetta. 1. Harry er að galdra við heimavinnuna í byrjun myndar. Hvað á það að þýða? Fyrst hann er að galdra það ætti það ekki að breyta...

hjálp (6 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Jæja nú vantar mig enn og aftur hjálp. Ég er að skrifa þennan blessaða spuna minn og er í stökustu vandræðum með allar þessar íslensku þýðingar á hlutunum. Ég hef nefninlega einungis aðgang að bókunum á ensku og hef ekki lesið nema þrjár fyrstu á íslensku og það var fyrir tæpum fjórum árum síðan. Núna vantar mig að vita einkunnagjöfina fyrir uglurnar, eða O.W.L. prófin. á ensku er það: O = Outstanding E = Exceeds Expectations A = Acceptable þessar einkunir jafngilda einni uglu hver. P = Poor...

Hjálpið Tzipporah (4 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Heil og sæl Nú er ég svo illa að mér að ég hef einungis lesið um Harry og félaga á ensku. Nú vantar mig íslenskuna. Hvað er Headboy og Headgirl á íslensku? Ég veit að prefects eru umsjónarmenn, en hitt veit ég ekki. Getur einhver hjálpað mér? Sem fyrst… svo ég geti uppfært trivuna. Kveðja Tzipporah

Breytingar á Triviureglum (8 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Heil og sæl Þar sem enginn virðist vera að lesa (eða allavegana ekki að svara) það sem ég setti inn undir þráðin “smá hugmynd varðandi triviuna” ákvað ég að búa til nýjan þráð um þetta málefni. Fram kom hugmynd um að núllstilla stigatöfluna í Triviunni okkar svo að nýjir þáttakendur hefðu möguleika á að komast í efstu sætin. Hugmyndin er áhugaverð, en þar er jafnframt ýmislegt sem þarf að taka tillit til og skoða vel áður en farið er í framkvæmdir. 1. Mér finnst ekki réttlátt að ninas og þau...

Uppáhalds grillsamlokan mín! (4 álit)

í Matargerð fyrir 20 árum
Uppáhalds grillsamlokan mín er eftirfarandi: Tvær brauðsneiðar (helst franskbrauð, ég er svoddan óhollustufrík) smurðar með blaðlauks-smurosti, smátt saxaður púrrulaukur settur báðar sneiðar. Skinkusneið eða skinkustrimlar settir á aðra sneiðina (persónulega finnst mér betra að hafa skinkustrimla því annars á skinkan það til að koma út í heilu lagi þegar ég bít í heita samlokuna) og ostsneiðar settar yfir, helst nota ég skólaost því hann finnst mér bestur. Hvernig ostur verður fyrir valinu...

Nýr korkur (0 álit)

í Matargerð fyrir 20 árum
Hér hefur opnað nýr korkur sem ætlaður er fyrir ýmsa smárétti og fljótlegar uppskriftir. T.d. góðar samlokuuppskriftir og fleira í þeim dúr. Verið nú dugleg að senda inn efni hingað! Kveðja Tzipporah

Ostafondú -- Hjálp (1 álit)

í Matargerð fyrir 20 árum
Kæru matgæðingar nú er ég alveg komin í þrot. Um nokkra hríð núna hefur mig langað alveg geypilega mikið í ostafondú. (Er ófrísk og þetta er ein af mínum svona cravings). En nú vill svo til að osta og smjörsalan er hætt að framleiða blokkostinn sem maður notaði alltaf í þetta í gamla daga og er í staðinn með eitthvað fondú-mix sem er tilbúið og ógeðslegt á bragðið. Ég fór því í Ostabúðina og ætlaði að kaupa mér osta til að búa til svona sjálf. Konan þar benti mér á emmentaler og sagði mér...

Sykurlaus barnaveisla (1 álit)

í Matargerð fyrir 20 árum
Heil og sæl öll sömul. Ég stóð í því að halda barnaveislu hér helgina eftir páska og var búin að fá mig full sadda af börnum í sykursjokki svo ákveðið var að halda sykurlausa veislu. Á boðstólum var eftirfarandi: Litlar útskornar samlokur. Brauðtertubrauðsneiðar teknar og smurðar (ég notaði kavíar og kæfu) og skorið út úr þeim með piparkökuformum. Einnig skar ég út blóm smurði botninn með smjöri en skar lítinn hring úr efri partinum, setti svo rauða sultu í gatið. Þetta kom mjög vel út og...

TIl áhugaspunahöfunda - lesist! (0 álit)

í Harry Potter fyrir 20 árum
Ég vildi bara fá að benda þeim sem eru að skrifa áhugaspuna á að neðst á síðunni eru komnar reglur sem áhugaspunarnir þurfa að uppfylla til að þeir verði samþykktir. Endilega lesið þessar reglur og lærið þær utanbókar! ;) Kveðja Tzip

Hmmmm.... Trivia? (3 álit)

í Harry Potter fyrir 20 árum
Ég get nú varla orða bundist. Eftir fjarveru mína hér um daginn sökum anna og heimilisaðstæðna var mörgum orðið fremur heitt í hamsi yfir skorti á nýjum spurningum í Triviunni. Margir spurðu mig kurteislega en aðrir ekki svo kurteislega hvenær væri eiginlega von á endurnýjun. Nú hef ég endurnýjað spurningarnar fyrir viku síðan og ætti því að fara að endurnýja aftur fljótlega en ekki nema örfáir af þeim fjölmörgu sem voru að kvarta hafa svarað. Hvernig stendur á því? Nú hafa ekki nema 6 af 25...

Barnaaugnlæknar? (3 álit)

í Börnin okkar fyrir 20 árum, 1 mánuði
Mig langar að spyrja hvort að einhver getur sagt mér frá góðum barnaaugnlækni. Þannig er að ég hef verið að fara með dóttur mína til augnlæknis sem er sérhæfður í augnskurðlækningum, vegna þess að hún er með slappt augnlok (það á samt ekkert að gera í því neitt á næstunni hún er bara í eftirliti). Sá hefur sett hana í sjónpróf en vegna þess að hún er ekki orðin fjögurra ára vill hann ekki sjónprófa hana. Ég taldi hann samt á það í haust vegna þess að ég hafði áhyggjur af sjóninni hennar (þó...

Er trivian of erfið núna? (7 álit)

í Harry Potter fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hvernig er það er trivian of erfið núna? Ég er ekki búin að fá nema 7 svör og þar af er 1 alveg nýr þáttakandi og 1 sem er að taka þátt í annað sinn. Hvar eru allar trúföstu hetjurnar mínar sem eru yfirleitt stigahæstar? Er fólk eitthvað að gugna? Yfirleitt er ég komin með ca 15 svör á þessum tíma. En þið hafið svosem ennþá tækifæri, 3 dagar til stefnu. Reyndar er ég á þeirri skoðun að þetta hafi kannski verið full erfitt í þetta skiptið þar sem enginn hefur verið með allt rétt…..ennþá ;)...

Hjálp!!!! (1 álit)

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Mig vantar svo að ná sambandi við Önnu Heiðu. Veit einhver netfangið hjá henni? ah@mmedia.is virkar ekki. Hjálp!!! Kveðja Tzipporah

Beagle? (7 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Eru ekki einhverjir fleiri sem rækta Beagle hunda aðrir en Dalsmynni? Ég er að leita mér að Beagle hvolpi, en finn engann. Allir sem ég finn eru farnir nema þeir sem eru frá Mánaskini (Dalsmynni). Hann þarf reyndar ekkert að vera hreinræktaður og/eða ættbókarfærður, bara að vera mest megnis beagle. Getur einhver hjálpað mér? Tzip

Hundar sem ekki fara úr hárum? (5 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Mig langar svo óskaplega mikið í hund, en þannig er mál með vexti að maðurinn minn er með ofnæmi fyrir hérumbil öllu. En hann er nú samt til í að reyna þetta með og við erum að velta fyrir okkur einhverjum hundum sem ekki fara úr hárum. Hvaða tegundir eru það sem ekki fara úr hárum? Getur einhver gefið mér frekari upplýsingar um svona hunda og hvernig hægt er að verða sér úti um svona hunda. (sem ódýrast, við erum fátækir námsmenn, með barn) Ef einhver getur hjálpað mér og gefið mér...

Moorhuhn 2 (0 álit)

í Tölvuleikir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Mig langar að forvitnast Hefur einhver getað skotið hænuna sem gægist á bakvið tréð? Tzipporah

Fyrirspurn (7 álit)

í Spenna / Drama fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Heil og sæl Ég horfði á nokkra þætti af Buffy fyrir löngu síðan (þegar ég var með stöð tvö) og þá fannst mér þessir þættir frekar ógeðslegir, en samt nokkuð góðir. Núna er mig farið að langa svolítið að kíkja aftur á þetta og er svolítið forvitin að vita, hvað er Angel? Hvaða þættir eru þetta? Ég veit að þetta er eitthvað um vampírukærastann hennar Buffy, en gerist þetta samhliða Buffy eða fyrir eða eftir Buffy og um hvað eru þeir? Ég er búin að vera að reyna að spyrja fólk í kringum mig en...

Eggjaofnæmi! (4 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mig vantar hjálp! Þannig er að ég er að vinna í leikskólaeldhúsi og tvö börn á leikskólanum eru með ofnæmi fyrir eggjum. Í dag var svo bananakaka með kaffinu og innihélt hún egg. Börnin tvö gátu því ekki fengið köku og þar sem ekkert kremkex var til í dag (búrið er frekar tómt svona á sumrin) var ekkert til handa þeim í staðinn nema tekex. Mér fannst þetta alveg hræðilegt og vil núna fara að leggja í það að baka eitthvað eggjalaust til að eiga handa þessum börnum þegar “eggjakökur” eru á...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok