Sælir kæru hugara, áhugaspunahöfundar og aðrir.
Ég vildi bara fá að vekja athygli ykkar á þessum nýja korki sem ætlaður er sérstaklega fyrir umræður um áhugaspuna og annað tengt þeim. Hér má birta spuna sem ekki komast inn á greinakubbinn, ræða um spuna, ræða hugmyndir að spunum, auglýsa eftir yfirlesurum og fleira sem ykkur dettur í hug og er tengt áhugaspunum.

Einnig vildi ég vekja athygli ykkar á boðorðunum 10 fyrir áhugaspunahöfunda sem finna má neðst á síðunni okkar.

Kveðja
Tzipporah