Hér er risinn nýr korkur sérstaklega ætlaður 6. bókinni og öllu sem henni tilheyrir.

Margir hugarar vilja ekkert heyra um bókina sem í vændum er hvorki vangaveltur lesenda né staðreyndir frá höfundi. Ég vil því biðja hugara að passa sig að láta ekki korkana bera heiti sem kjafta of mikið frá til þeirra sem gætu rekið augun í þetta á forsíðunni.

Kveðja
Tzipporah

p.s. ég eyddi t.d. út þræði á gamla korkinum sem hét “hver deyr í 6. bókinni?” það er eitthvað sem ekki allir vilja sjá. Fólk vill ekki endilega vita að einhver á að deyja.

Það voru samt spennandi linkar og umræður að birtast um þetta mál og það má endilega pósta þessu aftur inn hérna til að vekja þá umræðu aftur.