Fim og fislétt kisa,
með fallega,brúna snoppu.
Uppáhald er mysa
hún hefur eina hvíta loppu.

Þrjár loppur svartar,
svart er hennar skott.
Aldrei hún kvartar,
er fær hún dótið flott.

Allir að kisu dást,
því fær hún mikla ást.
Þakklát er hún líka,
að fá umhyggjuna ríka.