Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Ofspilun! (37 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Jæja! Nú ætla ég að taka á þjóðfélagsvandamáli sem snertir okkur öll! Þetta er nokkuð sem er búið að vera naga mínu viðkvæmu sál í þónokkurn tíma og ég er orðinn þreyttur á þessu, og í stað þess að taka þessu eins og týpískur íslendingur þá ætla ég að tala máli mínu og láta þetta frá mér. Það sem viðgengst á flestöllum útvarpsstöðvum og tónlistarsjónvarpstöðvum sem við íslendingar höfum aðgang að er fyrirbæri sem ég hef kosið að kalla Ofspilun, þetta hugtak lýsir sér þannig að lag sem þykir...

Munur á sjónarhornum (15 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég, líkt og margir, hef verið að spá í þeim atburðum sem áttu sér stað í Bandaríkjunum síðastliðinn þriðjudag og eftirmála þeirra. Það virðingarleysi fyrir mannslífum og hatur sem fyrirfinnst í nútíma samfélagi virðist vera stigið skrefi lengra með þessum aðgerðum… ég segi virðist því að þetta hefur alveg viðgengist fyrir þriðjudaginn 11.september 2001, það hefur bara aldrei komist svona nálægt okkar vestræna samfélagi líkt og það gerði nú fyrr í vikunni. Það er alveg nokkuð augljóst að...

Trommarar - Toplist (6 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Jæja, þá ætla ég að byrja enn eina vitleysuna…. Ég var að spá í því hver væri besti trommari rokksögunnar, þetta er auðvitað eitthvað sem flestir hafa skoðun á þannig að til að fá út hver er “Trommuleikari Rokksögunnar” þá verður kosið lýðræðislega um það hér á Rokk. Það er ekkert hægt að segja til um það hver er bestur en það er alltaf gaman að halda einhverjar svona kannanir. Til þess að gera lista sem inniheldur 5 nöfn sem kosið verður um í skoðunarkönnuninni þá verður þetta allt að vera...

Saga Deep Purple: Part II (10 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Með tilkomu Gillans og Clovers í Deep Purple þá snarbreyttist tónlistin, félagarnir tveir smellpössuðu inn í hljómsveitina og virtust hafa sömu skoðanir á rokki og hinir meðlimirnir, það átti að vera hratt, hrátt og með góða melódíu. Þessi meðlimaskipan sveitarinnar hefur verið nefnd “Hin eina sanna Deep Purple”. Fyrsta platan sem að hin “nýja” Deep Purple gaf út var hin kynngimagnaða Concerto For Group And Orchestra, sem var tónverk sem Jon Lord samdi með Konunglegu Fílharmóníusveitina...

Nýjir umsjónarmenn (0 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þar sem að Rokk er eitt af virkustu áhugamálunum hér á huga, þrátt fyrir ungan aldur, þá hef ég ákveðið að bæta við umsjónarmönnum hér til þess að ég fái ekki magasár :) Þeir virtu herramenn sem munu starfa mér við hlið til að tryggja það að greinarnar ykkar komist sem fljótast inn á Rokk eru der og Tannbursti´. Ég er að fara í sumarfrí frá og með 31.júlí og verð í einhverjar góðar 3 vikur, á því tímabili munu der og Tannbursti sjá um áhugamálið einir þannig að allar spurningar, Rokk-Trivia...

Saga Deep Purple: Part I (15 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Jæja, þá geri ég aðra tilraun til þess að senda inn sögu Deep Purple, hún kemur inn í nokkrum pörtum þar sem saga þessarar hljómsveitar teygjist frá seinni hluta sjöunda áratugarins til dagsins í dag, já fyrir ykkur sem ekki vissuð af því þá er Deep Purple enn í fullu fjöri að halda tónleika. Það er mikið búið að stokka upp í hljómsveitinni frá upprunalegu hljómsveitarmeðlimunum en ef eitthvað er þá rokka þeir meira núna heldur en nokkru sinni áður. Það var í ársbyrjun 1968 sem að...

Árnavísur (3 álit)

í Húmor fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hér eru vísur um Árna Johnsen, þetta er fengið af Tilveran.is. Ýmsu breytir öldin ný. Er mig kanski að dreyma? Nú er kominn kantsteinn í kartöflugarðinn heima. Hjálmar Freysteinsson Lygum greindi fólki frá fantur meina grófi Fáir leyna andstyggð á Árna steinaþjófi. Gísli Ásgeirsson Árni lokaleikinn vann á lífsins peyjamóti: Úr formennskunni fer nú hann með fulla vasa af grjóti. Þórarinn Eldjárn Árni Johnsen eins og vant ýmsan hneykslar sveininn, er við flesta upp á kant og ætti að fara í...

Rokk Trivia!! (5 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hvað er málið? Eru allir notendur hérna inni svona fáfróðir um íslenska tónlist eða? Það er einn búinn að svara mér á heilum 5 dögum, ég ætla að vona að þið elítu Rokkararnir hér inni hafið bara óvart látið þetta fram hjá ykkur fara og þess vegna ætla ég að hafa Íslensku Trivia-keppnina uppi í eina viku í viðbót. Endilega takið þátt og sýnið hvað þið eruð öll nú klár :) Kveðja, Pixie.

Helgarblað DV (9 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Umræðan um svokallaðan Helgafellsnauðgarann hefur fengið miklar umræðu hér á huga, en í Helgarblaði DV er einmitt 2 og hálfs blaðsíðna úttekt á málinu, fórnarlambinu og nauðgaranum. Eftir dóminn þá hef ég séð 2 greinar og 1 Helgarblað hjá DV sem að mótmæla dóminum (3 ár) harkalega, en einungis eina litla grein hjá Mogganum sem að fjallar eitthvað um málið… Hvað er málið með Moggan? Þetta er ein heitasta umræðan í þjóðfélaginu í dag og Mogginn lætur sem þetta sé ekkert að gerast, er...

Ástand miðbæjarins (43 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hversu slæmt er ástand miðbæjarins orðið? Er Lögreglan í Reykjavík hæf til þess að sjá um öryggi fólks í miðbænum? Eru Borgaryfirvöld að gera eitthvað í málunum? ___________________________________________________________________ Ofbeldismálum sem berast embætti lögreglustjórans í Reykjavík hefur fjölgað úr 681 frá árinu 1997 í 831 árið 2000, eða um 22% það er um 7% prósent hækkun á ári frá 1997 og miðað við þær útreikningar þá má búast við því að 890 ofbeldismál verði kærð árið 2001....

Tærnar okkar, stórar sem smáar. (1 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég er búinn að vera að spá í því upp á síðkastið hvað tærnar okkar heita… Ég veit að þessi lengst til vinstri á hægri fætinum heitir Stóra tá og líka þessi lengst til hægri á vinstri fætinum. Minnstu tærna yst á fótunum heita auðvitað Litlu tær, en hvað heita allar þessar tær á milli Litlu táar og stóru táar? Ég hef reynt að útskýra fyrir fólki t.d. þegar ég fæ krampa í tána við hliðina á Litlu-tá, að ég hafi fengið krampa í Baug-tánna, er það skiljanlegt? Er það raunin? Heita þær Vísi-tá,...

Ríddu mér! (68 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég fór á þessa mynd með það í huga að ég mætti búast við því að það væri eitthvað verið að reyna að ganga fram af manni. Ég hafði heyrt eitthvað um hana áður en ég fór á hana svo að ég vissi nokkurn veginn við hverju mátti búast, en ég tók eftir því að það voru margir sem ekki vissu hvað þeir voru að borga sig inn á. Þegar ég settist inn í salinn þá var einhver smávaxinn unglingur aftast sem talaði með öllum auglýsingunum, var eitthvað að herma eftir djúpu karlmannsröddinni sem að kynnti...

Hugleiðingar um innhverfu sjálfsins (1 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég ligg á rúminu mínu ofan á sænginni í öllum fötunum, ég fer að íhuga eitthvað og hugsa of stíft, loka augunum og sekk ofan í sjálfan mig. Allt í einu finnst mér eins og það snúist allt í kringum mig og ég byrja að sökkva dýpra og dýpra í sængina, hvað er að gerast? Ég fer í gegnum sængina, gegnum rúmdýnuna, gegnum gormana í dýnunni. Allt í einu er eins og ég sé ekki háður neinum lögmálum náttúrunnar, ég get svifið, svifið í gegnum vegginn á fimm hæða blokkinni sem ég bý í, ég get svifið...

Besti smásagnahöfundur Huga? (4 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hver finnst ykkur vera besti smásagnahöfundur Huga? Ég tók á því í einhverju kasti að fara yfir gamlar greinar og þaullesa það sem vakti áhuga og ég verð að segja það að ég varð heillaður af skrifum sem einhver notandi sem heitir eirikurj skrifaði. Hann hefur samt ekkert skrifað síðan 18.desember eða eitthvað, veit einhver hvað varð um hann? Ég ætlaði að reyna að ná í hann. Kíkið á þessar gömlu greinar eftir hann…. - Pixie

Bókmenntir og LISTIR?!? HVAR? (1 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Kannski er það bara ég en, VANTAR EKKI LISTAPARTINN HÉRNA? Ég veit það fyrir víst að það eru margir sem vildu sjá og sjá um áhugamál hérna á huga sem héti Myndlist og enn fleiri sem vilja sjá Ljósmyndun. Aquatopia, ef þú lest þetta, komdu þessu þá í vinnslu fyrir okkur listasnobbarana :) Takk og Kveðja, Pixie.

Frítt húsnæði... leiga? Brjóttu af þér! (39 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég var að lesa grein í Helgarblaði DV þar sem segir að í Saudi-Arabíu hafi maður verið tekinn af lífi um helgina, afhverju? Jú, því hann var dæmdur fyrir það að nauðga barni. Maðurinn fékk nákvæmlega það sem mér finnst að hann hafi átt skilið, hann var afhausaður á almannafæri. Í Saudi-Arabíu er dauðarefsing fyrir morð, nauðgun og eiturlyfjasmygl. Á meðan á Íslandi eru afbrotamenn að fá þyngstu dómanna fyrir eiturlyfjasmygl og morð, en nauðgararnir eru að sleppa með skrekkinn! Þetta er það...

Kvikmyndir (4 álit)

í Hugi fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Er það bara ég eða finnst einhverjum öðrum flokkunin undir áhugamálinu Kvikmyndir asnaleg? Þar eru undirflokkarnir DVD og Star Wars!!! Annarsvegar þá er ein sería af kvikmyndum (Star Wars) og hinsvegar tækni til þess að spila kvikmyndir (DVD). Væri ekki nær lagi að hafa þarna Sci-Fi (Star Trek, Star Wars og þar fram eftir götunum), Ævintýramyndir (Indiana Jones, LOTR o.s.frv.), Hasarmyndir o.s.frv. Eða bara sleppa þessu og hafa bara Kvikmyndir? - Pixie

Þingmenn keppa í flotandasundi. (4 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég var að lesa hérna litla grein á forsíðu Morgunblaðsins þar sem segir frá því að þingmenn á Bretlandi keppi árlega í því að fleyta gúmmíöndum niður Thames ánna í London, allt er þetta gert í góðgerðarskyni og hagnast sennilega langsjúk börn, og fleiri sem þurfa hjálp, sennilega best á þessu. Afhverju geta íslendingar ekki gert eitthvað þessu líkt til þess að virkja alþingismennina okkar í að gera eitthvað sem hefur sýnileg áhrif og til þess að minna okkur á það að þeir eru að vinna fyrir...

Ansi góð quote. (0 álit)

í Húmor fyrir 22 árum, 9 mánuðum
“The difference between ‘involvement’ and ‘commitment’ is like an eggs-and-ham breakfast: the chicken was ‘involved’ - the pig was ‘committed’.” - unknown

Hvernig eruð þið að fíla gamalt rokk almennt? (0 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 9 mánuðum

Rokk-banner (7 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Eruð þið sátt við bannerinn nýja hér á Rokk? Ég er nefnilega með annan banner sem að ég væri til í að sjá hérna… það er að segja ef að óánægja ríkir með þennann. Endilega segið mér YKKAR skoðun á hlutunum, þið getið kíkt á hinn bannerinn á Kasmír-síðunni minni <A href="http://kasmir.hugi.is/pixie ">hér </A>. - Pixie

Jello Biafra (4 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég verð að byrja þessa grein á því að leiðrétta smá miskilning sem að ég hef að einhverju leiti hjálpað til við að útbreiða, að Jello Biafra væri að flytja svokallað “Slam Poetry”, þetta er hreinn og beinn miskilningur þar sem ruglast var á orðunum “Spoken Word” og “Slam Poetry”. Ég verð að segja það að ég vissi hreint ekkert við hverju var að búast þegar ég gekk inn um dyrnar á Gauknum í gær… ég mátti búast við bið. Um klukkan hálf-ellefu leytið þá kom maðurinn loks á svið, og hann var svo...

Hvað er síðrokk? (8 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég rakst á svo rosalega góða grein á heimasíðu Hljómalindar að ég varð að senda hana inn, ég veit að þetta er copy/paste en ég hefði ekki getað orðað þetta betur sjálfur. Hún fjallar um post-rokk eða síðrokk eins og það hefur verið íslenskað (post þýðir eftir, kemur ekki af lýsingarorðinu “sítt”) og þar sem umræða um Sigur Rós og fleiri góðar post-rokk sveitir hefur verið að magnast hér á rokk þá ætla ég að nota tækifærið til þess að útskýra fyrirbærið, bara ekki í eigin orðum. - Pixie Þessi...

Greinarsvör (0 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég vill taka það fram, af gefnu tilefni, að þegar fólk er að svara greinum með einhverjum leiðindum og asnaskap og eyðileggja annars góða umræðu þá bið ég ykkur hin sem ekki stundið þessa leiðindaiðju að virða það ekki viðlits og einfaldlega svara þeim ekki. Ef enginn svarar þessum commentum þá á ég þess kost að eyða þeim, ef þið svarið þeim þá vill ég ekki eyða þeim því þá detta ykkar svör út líka. Ég mun nota þetta meira í framtíðinni á fólk sem er að koma með einhverjar leiðinda...

Sigur Rós (23 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þessi hljómsveit sem við þekkjum öll sem Sigur Rós er sennilega næsta stórgrúppa Íslands síðan að Sykurmolarnir voru og hétu. Þeir eru þegar búnir að taka Bandaríkin með trompi og fólk fær gersamlega ekki nóg af þeim þarna fyrir vestan haf, þó svo að enginn skilji það sem þeir eru að syngja því að allt er þetta (ennþá) sungið á íslensku. Ágætis byrjun rokselst þar sem hann er ennþá til útí Bandaríkjunum og ef maður hittir Bandarískann háskólanema hér á klakanum þá er þetta (Sigur Rós)...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok