Ég var að lesa grein í Helgarblaði DV þar sem segir að í Saudi-Arabíu hafi maður verið tekinn af lífi um helgina, afhverju?
Jú, því hann var dæmdur fyrir það að nauðga barni.

Maðurinn fékk nákvæmlega það sem mér finnst að hann hafi átt skilið, hann var afhausaður á almannafæri.

Í Saudi-Arabíu er dauðarefsing fyrir morð, nauðgun og eiturlyfjasmygl.

Á meðan á Íslandi eru afbrotamenn að fá þyngstu dómanna fyrir eiturlyfjasmygl og morð, en nauðgararnir eru að sleppa með skrekkinn!

Þetta er það versta sem hægt er að gera einhverri manneskju, þetta er hámark niðurlægingarnar og þetta gjörsamlega eyðileggur sjálfstraust fórnarlambsins og ef eitthvað er þá finnst mér að það ætti að vera eitthvað annað en Litla-Hraun hér á íslandi til þess að afgreiða afbrotamenn, nú er búið að leyfa það að fá sendar pizzur á Hraunið!!!

Hvað er þetta! Er verið að dæma afbrotamenn til frírrar gistingar á félagsheimili afbrotamanna?
Þeir mega taka með sér sjónvarp og leikjatölvur og allann andskotann til þess að skemmta sér, það er einnig vel vitað að það er verið að selja fíkniefni inni á Hrauninu, og þegar þeir koma út þá eru þeir búnir að kynnast fleiri afbrotamönnum og hafa engann hug á að gerast betri menn.

Ég veit það vel að í Bandaríkjunum þá er fangelsisaðstaða það slæm að afbrotamenn ganga langt til þess að lenda ekki í fangelsi, ég veit það að verri fangelsi hjálpa ekkert til, þau endurhæfa ekki einn einasta mann, þau gera afbrotamenn verri.

En afhverju að leyfa þeim að hafa það svona gott?

Í heimildarmyndinni um Lalla Johns þá kom það einhversstaðar meira að segja fram að Hraunið væri líka bara frí gisting fyrir þá sem væru á götunni, ef allt væri í lagi hérna á Íslandi ætti þá ekki að vera neyðarskýli fyrir þá sem búa á götunni og þurfa að vera úti í harða íslenska vetrinum?

Ég vill fá að sjá íslenskt fangelsi sem að virkilega gerir afbrotamenn hrædda við að lenda inni, ekki einhverjar sumarbúðir fyrir afbrotamenn.

- Pixie