Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Nýjar kenningar um vöggudauða (11 álit)

í Börnin okkar fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ástralskur sérfræðingur að nafni George Cristos er lektor í stærð- og eðlisfræðin við Curtin-tækniháskólann. Hann hefur komið fram með nýjar áhugaverðar kenningar um vöggudauða. Hann heldur því fram að draumar ungbarna séu svo raunverulegir að líkamsstarfsemi þeirra breytist. Hann vill meina það að ungbörnin dreymi að þau séu enn í móðurkviði og hreinlega hætti að anda. Hann hefur vitnað í bandaríksa rannsókn sem sýndi fram á það að fólk hætti að anda þegar að það dreymdi að það væri undir...

Þú þekkir mig (6 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég vinn mikið í því að blanda saman myndlist minni og ljóðum og nú er ég á fullu í photoshop sem mér þykir einstaklega skemmtilegt forrit. Oftast notast ég þá við sjálfa mig sem myndefni eða einhverja nána mér (þá aðalega einn af heimilisköttunum). Eins og í þessu tilviki þá er það ég sem er myndefnið en ég efast um að litla ljóðið sjáist eitthvað með myndinni þar sem hún þarf að vera svo lítið svo að ég ætla að skrifa það sérstaklega upp. Þú þekkir mig og þú veist ég er eins og fiðrildi og...

Lilli er týndur!! (12 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hann Lilli er týndur. Hann Lilli hvarf frá heimili sínu að Garðavegi 11, Hafnarfirði þann 29. ágúst síðastliðinn. Hann er hreinræktaður síams en albínói og því skjannahvítur með himinblá augu. Hann er mjög mannelskur og talar (mjálmar/vælir) mikið. Hann er ómerktur og ógeldur og ekki vanur því að vera svo mikið úti. Hann er frekar heimakær og er aldrei lengi í burtu í einu. Hann er 1 ½ árs gamall. Hans er mjög svo sárt saknað og hefur heimilislífið hreinlega ekki verið það sama síðan að hann...

Kettlingar gefins :) (15 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Jæja þá er komið að því að ég þarf að láta litlu krúttin mín… þó svo að ég vilji það nú helst ekki en þá er full mikið fyrir mig að vera með 6 ketti! Þetta eru þrír kettlingar, tveir strákar og ein stelpa sem fædd eru 7. júní og eru því orðin 2 mánaða. Þau eru öll orðin kassavön þó að það hafi verið vesen með læðuna á tímabili þá er hún nú farin að rata alveg í kassann. Þau eru öll hress og hraust. Þau eru öll farin að fá fasta fæðu og þá bara þurrmat og vatn en þau liggja stundum á spenanum...

Nýjustu fjölskyldumeðlimirnir (8 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Þann 7. júní kom læðan okkar litla loksins með krílin sín litlu, við vorum búin að bíða lengi spennt. Á aðeins tveimur tímum voru allir fjórir ketlingarnir komnir í heiminn og hin nýbakaða móðir fór að hreinsa allt og alla og gera fínt. Fressinn okkar átti svo ekkert í þessum litlu greyjum eins og við höfðum vonað og honum er líka bara slétt sama um þessa kettlinga, hann reyndar fór snemma að tékka á þeim og þefa svolítið en síðan er honum alveg sama. Í dag eru þeir nákvæmlega 3 vikna og...

Hundur með hárlos! (22 álit)

í Hundar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Nú vantar mig smá aðstoð frá ykkur kæru hundaeigendur. Ég er með einn 2 ára blending (mamman kokteill en pabbinn hreinræktaður retriever). Þetta er vænasta grey en hann er ekki mín eign það er bróðir minn sem er eigandi að þessum hundi þó svo að þessi hundur sé nánast í minni umsjá og verður það næstu 2 mánuðina þar sem að bróðir minn er farinn til Spánar. Nú er vandamálið það að hann bróðir minn hefði nú aldrei átt að vera að fá sér þennan hund til að byrja með þar sem að hann er alls ekki...

Reykingar - Loftbrjóst (11 álit)

í Heilsa fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Mig langaði til að segja ykkur frá svolitlu sem kom fyrir manninn minn núna á miðvikudagskvöldið. Við höfðum verið á bar sem að vinur hans vinnur á bara að spjalla og slappa af (hvorugt okkar að drekka). Þegar að við erum svo að keyra heim rétt upp úr miðnætti byrjar hann að kvarta undan verk í brjóstinu, hann lítur samt vel út og þetta virkaði ekki sem neitt voðalegt mál fyrr en við komum heim og hann leggst upp í rúm og fer þá að kvarta yfir því að eiga erfitt með að anda og geti bara ekki...

Bara ef! (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Bara ef! Ef ég væri viss um þig Þá vissi ég mig. Ef ég þekkti mun á regni og degi Þá myndi ég synda í birtu. Ef ég kynni að tala við þig Þá segði ég þér ævintýrir lífs míns. Ef ég gæti dreymt á daginn Þá þyrfti ég ekki að sakna þín.

Hundar og húsbóndar þeirra. (5 álit)

í Hundar fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég er að spá í því hvort að fyrir hundi sé sá sem er með hann frá því að hann sé hvolpur og eitthvað áleiðis sé húsbóndi hans það sem eftir er. Nú hefur það alveg komið fyrir að hundar skipti um eigendur og hefur það skilað mismunandi árangri. Ég er persónulega á því að böndin milli hunds og húsbónda slitni ekki svo auðveldlega. Ástæðan fyrir þessum vangaveltum mínum er sú að bróðir minn á hund sem er 2 ára. Hann var voðalega duglegur að vera með hann svona rétt í byrjun en svo hefur áhuginn...

Jólahugleiðing (3 álit)

í Hátíðir fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Smá svona hugleiðing sem ég fann á netinu og snaraði yfir á íslensku um hvað við höfum það í raun og veru gott miðað við svo marga í heiminum. Jólin eru ákkurat sá tími til að pæla í þessum hlutum. Ef að þú átt mat í ísskápnum, átt föt, þak yfir höfuðið og stað til að sofa á… …þá ertu ríkari en 75% af heiminum. Ef að þú átt pening í bankanum, í veskinu eða auka klink í krukku einhversstaðar… …þá ert þú með topp 8% ríkasta fólki heimsins. Ef að þú vaknaðir í morgun með meiri heilsu en...

Jólaförðunin (8 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Hérna eru smá pælingar um hvað er mest í tísku þessa stundina í förðun. Þessi sterka mikla förðun sem var svo áberandi í haust er alveg búin að víkja fyrir náttúrulega lúkkinu. Það sem gildir núna er látlaust meiköp með smá áherslum og þá mest á kinnar eða þá á augu. Það sem að ég hef rekið mig á núna er að það eru nokkra týpur af svona förðun í gangi og hér á eftir fáiði smá upplýsingar um það. Punkpían Náttúrulegt meiköp en aðeins ýkt, fljótandi meik og púður og helst að setja svolítið...

á titils (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég huxa um þig drekkandi tunglskin Á hverri nóttu sem líður. Sleikjandi regndropa í morgunsárið, Syndandi gullfiska Ég gæti gefið þér ást mína Í öðrum draumi. Æ hvað ég sakna sólaruppkomu, Sökkvandi hreinleika Og blómstrandi brosa.

Desember (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Desember. Þú hefur fallegt andlit Og þú brosir til mín Er ég fer fram hjá þér Og ég vona að svona verði englarnir Sem ég bíð efitir. Ekki gera þau mistök Að halda að ég þori ekki Því ég hef ekkert betra að gera Annað en að brenna innra með mér Í leyni. Passaðu mig, ég þarf pössun. Vaktu yfir mér, Því ég blómstra ekki í desember Og þú getur læðst aftan að mér En mér mun ekki bregða Í mesta lagi syndi ég til guðanna Í birtingu. Þetta er eitt af mínum þunglyndisljóðum því hingað til hefur...

Tískuvikan í New York (3 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Eins og margir vita sem fylgjast með tískunni þá var tískuvikan nýbyrjuð í New York þegar að þessi hræðilegu hryðjuverk voru framin og að sjálfsögðu hafa ekki verið neinar sýningar síðan á mánudag. Margir af helstu fatahönnuðum landsins eiga einmitt eftir að sýna fatalínur sínar fyrir næsta vor og sumar. Venjulega er þetta stór viðburður í tískuheiminum en skiljanlega hefur þessu verið frestað eins og svo mörgu öðru. Í tilkynningu frá stjórnendum tískuvikunnar kemur fram að búast má við að...

Söknuður meistara (7 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Meistari minn mátti ekki vera að því að hlusta á sögu mína af miðvikudegi. Ég sem reyndi að telja honum trú um það að andspænis sópransöngkonunni hefði verið tilgangsleysi sem enginn sá nema ég. Flestir vöknuðu upp af værum blundi þessa nótt sem rigningin kom. Hvað átti ég að gera til að lina kvalir þínar, ég reyndi mitt allra besta en þú vildir ekki tala um það en þess í stað baðst mig á brott að hverfa sem ég gerði með glöðu geði, guðslifandifegin að sleppa frá áráttu þinn um kynhegðun....

Hvað Karlmenn segja við konur og hvað þeir meina. (13 álit)

í Rómantík fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Við konur höfum oft verið að velta því fyrir okkur hvernig karlarnir okkar hugsa. Við höfum það oft á tilfinningunni að karlarnir hreinlega segi ekki það sem þeir meina heludr það sem þeir halda að við viljum heyra. Ég rakst á ansi skemmtilegar útskýringar á netinu eftir Jónas Sen um það hvað karlmenn virkilega meina þegar þeir segja hitt og þetta. Gjörið svo vel og skemmtið ykkur. “Ég elska þig” En það eru ekki bara þegar slíta á sambandi sem karlmenn nota einhverskonar merkjamál. Meira að...

Pitt og Aniston (13 álit)

í Fræga fólkið fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Nú vita sjálfsagt flestir að Brad Pitt var búin að gefa eiginkonu sinni Jennifer Aniston grænt ljós á að sofa hjá rokkaranum gamla úr Aerosmit Steven Tyler, ef henni gæfist þess kostur það er að segja. Hún hefur víst alltaf haft áhuga á kallinum þó að hann sé talsvert eldri en hún. En nú er annað komið upp hjá þeim hjónum og það er það að Jennifer hefur ákveðið að leyfa Brad að sænga hjá Michelle Phiffer ef kostur gefst á. Mér finnst þetta soldið undarleg pæling hjá þeim hjónum a leyfa svona...

Móðursýki (7 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég var svona að velta því fyrir mér í sambandi við verðandi mæður og móðursýki. Ég er nú ein af þessum verðandi mæðrum og er þetta mín fjórða ólétta en ég á þrjú fósturlát að baki. Seinast misti ég fóstur fyrir 3 árum og var það það sem kallast eftirlegufóstur, þ.e. að fóstrið deyr en allt heldur áfram eins og ekkert hefur í skorist nema hvað að þungurnareinkenni hverfa. Engir verkir eða blæðingar eða neitt sem gefur til kynna fósturlát nema kannski nokkrum vikum seinna þegar líkaminn hefur...

Förðun fyrir haustið. (15 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Mig langar að segja ykkur stelpur frá því hvað er það heitasta í förðun fyrir haustið (ég er föðrunarfræðingur). Augun: Það sem er heitast núna er rosalega sterk förðun sem kallast smoky. Það mætti segja að þessi förðun sé svona næstum því eins og frá því í gær og sé farin að renna svolítið til. Hvernig á að gera: Til að byrja með er notaður býantur, annaðhvort svartur eða brúnn en þá á ég ekki við þessa blýanta sem að við notum jú flestar heldur púðurblýanta. Gerðar eru línur eins nálægt...

Kötturinn minn albínóinn. (8 álit)

í Kettir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Mig langaði til að sýna ykkur hann Lilla heimilisköttinn. Hann er hreinræktaður síamsköttur og albínói í þokkabót og höfum við fengið þá staðfestingu frá nokkrum dýralæknum. Þetta er lang skemmtilegasti köttur sem að ég hef kynnst, hann er svo rosalega mikil týpa. Mig langaði til að vita hvort að einhver ykkar hafi komist í kynni við albínóakött því þetta er sá fyrsti sem að ég sé og ég hef átt marga ketti í gegnum ævina. Ég er búin að leita á netinu og í hinum ýmsu kisubókum en hvergi finn...

Nú er það svart (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Að sjá fyrir sér sjáöldur augna þinna þegar þú lýgur að mér, það er ein af mínum sérgreinum. Þegar þú loks getur horft á mig brosa þá fer ég frá þér. Í eðli mínu er ég sorgmædd og vil sjaldan spila á spil en þesss í stað skal ég með glöðu geði syngja. Þegar þreytan sest að í augunum og þau vilja lokast þá er um að gera að fylgjast grannt með rigningunni. Í hverra manna landi þekkja fjöllin mig með nafni? Hvar er það sem hafið vill í sífellu segja mér sögur sínar, nú ekki er það hér heldur í...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok