Kötturinn minn albínóinn. Mig langaði til að sýna ykkur hann Lilla heimilisköttinn. Hann er hreinræktaður síamsköttur og albínói í þokkabót og höfum við fengið þá staðfestingu frá nokkrum dýralæknum. Þetta er lang skemmtilegasti köttur sem að ég hef kynnst, hann er svo rosalega mikil týpa.

Mig langaði til að vita hvort að einhver ykkar hafi komist í kynni við albínóakött því þetta er sá fyrsti sem að ég sé og ég hef átt marga ketti í gegnum ævina. Ég er búin að leita á netinu og í hinum ýmsu kisubókum en hvergi finn ég neitt um albínóa og ég hef ekki hugmynd um það hvort að þetta sé sjaldgæft eða algengt.

En allavega meigiði segja mér frá því ef að þið hafið séð þetta áður.