Reykingar - Loftbrjóst Mig langaði til að segja ykkur frá svolitlu sem kom fyrir manninn minn núna á miðvikudagskvöldið. Við höfðum verið á bar sem að vinur hans vinnur á bara að spjalla og slappa af (hvorugt okkar að drekka). Þegar að við erum svo að keyra heim rétt upp úr miðnætti byrjar hann að kvarta undan verk í brjóstinu, hann lítur samt vel út og þetta virkaði ekki sem neitt voðalegt mál fyrr en við komum heim og hann leggst upp í rúm og fer þá að kvarta yfir því að eiga erfitt með að anda og geti bara ekki andað liggi hann á hægri hliðinni. Ég komin tæpa 8 mánuði á leið og geri kannski soldið meira úr hlutunum en undir venjulegur kringumstæðum ákveð því að hringja á læknavaktina og þar tala ég við hjúkrunafræðing sem segir mér að margt geti komið til greina og hann þufi bara að láta lækni líta á sig. Maðurinn minn er soldið þrjóskur og ætlaði eitthvað að harka þetta af sér í stað þess að fá lækni sendan heim sem jú kostar soldin pening en ég tala hann á að það sé besti fyrir hann að láta líta á sig því það sé aldrei að vita hvort að þetta sé bara sýking í lungum eða samfallið lunga eða þá bara vöðvaverkir. Hann gefst upp á endanum og ég bið um lækni heim. Ég þyrfti kannski að taka það fram að maðurinn minn virtist vera ágætlega hress og það virkaði eins og það væri ekkert alvarlegt af honum… ég meina hann sat við tölvuna og lét sér í quake! En læknirinn kemur og skoðar hann og segir okkur að nú þurfi hann upp á spítala því að öllum líkindum sé lungað fallið saman og hann verði að fara í myndartöku. Við sem sagt förum upp á spítala en hann virðist vera að lagast þannig að við héldum að þetta væri nú ekkert svo alvarlegt fyrr en læknirinn kemur til að tala við okkur um niðurstöðurnar úr myndatökunni. Lungað var alveg fallið saman og starfaði ekkert, hefði ekkert verið gert við þessu í sirka 2 daga þá hefði lungað eyðilagst! Hann segir okkur svo ástæðu þess að lungað hafi fallið, að öllum líkindum þá var þetta út af reykingum, en ég við taka það fram að hann reykir ekki mikið miðaða við marga, ½ pakka á dag. Þetta er eitthvað sem er mjög algengt hjá ungum grönnum karlmönnum sem reykja. En aðsjálfsögðu er þetta ekki engöngu bundið við reykingamenn, þetta getur líka komið vegna óreglu í mataræði svo sem að borða ekki morgunmat. En nú kemur það versta! Það varð að gera gat á hann strax til að hleypa loftinu út sem lekið hafði úr lunganu og yfir í brjóstholið. Það var gert þannig að hann var dópaður upp af verkjalyfjum og svo staðdeyfður en var vakandi og ég var þarna inni hjá honum meðan að þetta var gert. Skurður var gerður á síðuna og pípa rekin inn á milli rifbeinanna og það með herkjum og hann fann mjög mikið til þó svo að hann hafði fengið morfín í æð. Maður heyrði loftið frussast út úr honum og svo var komið fyrir slöngu í gatinu og hann tengdur einvherri vél sem að blési lofti í lungað til að redda því því að það hafði algjörlega fallið saman. Hann er ennþá með þessa slöngu inn í brjóstholið 2 dögum seinna og hann verkjar undan henni þó að hann sé á sterkum verkjalyfjum. Slangan er svo tengd við dælu sem mælir loftið sem lekur út frá lunganu og í brjóstholið en hann losnar ekki við þessa slöngu fyrr en gatið á lunganu er gróið. Þetta var virkilega ógeðslegt allt saman og að hugsa sér að það hefði getað farið verr því stundum dugar ekki þessi aðgerð og þá þarf að gera aðgerð á lunganu sem er miklu meira mál. Hugsa sér að það hefði mátt koma í veg fyrir þetta: Reykja ekki! Nú verður hann að hætta að reykja því lungað er illa farið eftir þetta. Hann verður á spítalanum fram yfir helgi og svo eftir það má hann ekkert vinna í allavega viku og heldur ekkert reyna á sig né neitt. Það eina góða við þetta allt saman er það að nú hættir hann sko að reykja!

Pæliði soldið í þessu, þetta er mjög algengt meðal reykingamanna, það myndast blaðra í lunganu sem springur svo og þetta er afleiðing þess. Ég er ekki að segja öllum að hætta að reykja bara að koma með smá dæmi því flestir telja sig svo örugga og halda að ekkert komi fyrir sig. Ég ætti kannski að minnast á það að maðurinn minn er bara 24 ára gamall. Ég hætti sjálf þegar að ég komst að því að ég væri ólétt og mér hefur aldrei liðið eins vel, ég er ekki bundin því að þurfa alltaf að fá mér sígarettu, ég spara mér peninginn sem er mikill! og ég er ekki að gera líkama mínum eins ljótan grikk.

Hugsaðu aðeins út í þetta því þetta getur komið fyrir þig!