Bara ef!

Ef ég væri viss um þig
Þá vissi ég mig.
Ef ég þekkti mun á regni og degi
Þá myndi ég synda í birtu.

Ef ég kynni að tala við þig
Þá segði ég þér ævintýrir lífs míns.
Ef ég gæti dreymt á daginn
Þá þyrfti ég ekki að sakna þín.