Pitt og Aniston Nú vita sjálfsagt flestir að Brad Pitt var búin að gefa eiginkonu sinni Jennifer Aniston grænt ljós á að sofa hjá rokkaranum gamla úr Aerosmit Steven Tyler, ef henni gæfist þess kostur það er að segja. Hún hefur víst alltaf haft áhuga á kallinum þó að hann sé talsvert eldri en hún. En nú er annað komið upp hjá þeim hjónum og það er það að Jennifer hefur ákveðið að leyfa Brad að sænga hjá Michelle Phiffer ef kostur gefst á.

Mér finnst þetta soldið undarleg pæling hjá þeim hjónum a leyfa svona “framhjáhald” og láta allan heiminn vita af því, þetta væri nú soldið annað ef að þau hefðu þetta út af fyrir sig. Reyndar minnir þetta mig á einn af Friends þáttunum þar sem Aniston er öllum að kunnugu ein af aðalleikurum. En þátturinn hefur verið kallaður: “the one with the list” og höfðu þá einhver þeirra vina gert lista á móti kærastanum/kærastanum þar sem þau töldu upp hvaða fræga fólk þau vildu sænga hjá.

Þetta er viss pæling.