Meistari minn mátti ekki vera að því
að hlusta á sögu mína af miðvikudegi. Ég sem
reyndi að telja honum trú um það að andspænis
sópransöngkonunni hefði verið tilgangsleysi
sem enginn sá nema ég. Flestir vöknuðu upp
af værum blundi þessa nótt sem rigningin kom.
Hvað átti ég að gera til að lina kvalir þínar, ég
reyndi mitt allra besta en þú vildir ekki tala um
það en þess í stað baðst mig á brott að hverfa sem
ég gerði með glöðu geði, guðslifandifegin að sleppa
frá áráttu þinn um kynhegðun. Ótrúlegt hvað sumir
geta lagst lágt. Sýna sínar verstu hliðar og
lita svo bara á sér hárið. Hvursu langt
getum við gengið án þess að skaða nokkurn?
Hvað langt getur grasið fallið frá jörðu?
Hvenar getum við stungið okkur á kaf í
snjóinn án þess að verða fyrir varanlegur
skaða. Æ ég veit við liggjum ekki saman
á þessari dýnu og ég er svo ánægð eftir að
ég komst að því að systurnar lugu þessu upp á þig.
Við gætum gert allt svo fallegt ef allir væru
bara ekki að tala um okkur.