Desember.


Þú hefur fallegt andlit
Og þú brosir til mín
Er ég fer fram hjá þér
Og ég vona að svona verði englarnir
Sem ég bíð efitir.
Ekki gera þau mistök
Að halda að ég þori ekki
Því ég hef ekkert betra að gera
Annað en að brenna innra með mér
Í leyni.
Passaðu mig, ég þarf pössun.
Vaktu yfir mér,
Því ég blómstra ekki í desember
Og þú getur læðst aftan að mér
En mér mun ekki bregða
Í mesta lagi syndi ég til guðanna
Í birtingu.


Þetta er eitt af mínum þunglyndisljóðum því hingað til hefur desember alltaf verið rosalega erfiður mánuður fyrir mig en ekki núna í fyrsta skiptið í mörg mörg ár og er ég ofsalega ánægð með það en langaði til að deila þessu með ykkur :)