Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Gulir dagar (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Gulir dagar Milli steinanna sástu hafið gráta Í huga þér fylltist allt af blómum, Sem þú vökvaðir með tárum jarðar. Þú huxaðir í ljóðum við uppvaskið Sem stytti þér stundir í gegnum Gula daga.

Jólaförðunin (8 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Hérna eru smá pælingar um hvað er mest í tísku þessa stundina í förðun. Þessi sterka mikla förðun sem var svo áberandi í haust er alveg búin að víkja fyrir náttúrulega lúkkinu. Það sem gildir núna er látlaust meiköp með smá áherslum og þá mest á kinnar eða þá á augu. Það sem að ég hef rekið mig á núna er að það eru nokkra týpur af svona förðun í gangi og hér á eftir fáiði smá upplýsingar um það. Punkpían Náttúrulegt meiköp en aðeins ýkt, fljótandi meik og púður og helst að setja svolítið...

á titils (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég huxa um þig drekkandi tunglskin Á hverri nóttu sem líður. Sleikjandi regndropa í morgunsárið, Syndandi gullfiska Ég gæti gefið þér ást mína Í öðrum draumi. Æ hvað ég sakna sólaruppkomu, Sökkvandi hreinleika Og blómstrandi brosa.

Desember (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Desember. Þú hefur fallegt andlit Og þú brosir til mín Er ég fer fram hjá þér Og ég vona að svona verði englarnir Sem ég bíð efitir. Ekki gera þau mistök Að halda að ég þori ekki Því ég hef ekkert betra að gera Annað en að brenna innra með mér Í leyni. Passaðu mig, ég þarf pössun. Vaktu yfir mér, Því ég blómstra ekki í desember Og þú getur læðst aftan að mér En mér mun ekki bregða Í mesta lagi syndi ég til guðanna Í birtingu. Þetta er eitt af mínum þunglyndisljóðum því hingað til hefur...

Aaatsjúúú! smá upplýsingar um kvef. (0 álit)

í Heilsa fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Nú er einmitt sá tími árs kominn að kvefið fer að láta á sér kræla ( og greinahöfundur er engin undantekning, situr heima við rölvuna med stibblad neb). Þó að það sé mjög misjafnt eftir mönnu hve oft á ári þeir fái kvef þá er eðlilegt að fá kvef 2-4 sinnum á ári en sumir eru svo heppnir að þeir verða ekki nærri því svo oft kvefaðir. En hér á eftir fara nokkrir fróðleiksmolar um kvef og hvað hægt sé að gera til að bæta líðanina þegar maður er kvefaður. Smithætta á kvefi er frá því dagin áður...

Tískuvikan í New York (3 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Eins og margir vita sem fylgjast með tískunni þá var tískuvikan nýbyrjuð í New York þegar að þessi hræðilegu hryðjuverk voru framin og að sjálfsögðu hafa ekki verið neinar sýningar síðan á mánudag. Margir af helstu fatahönnuðum landsins eiga einmitt eftir að sýna fatalínur sínar fyrir næsta vor og sumar. Venjulega er þetta stór viðburður í tískuheiminum en skiljanlega hefur þessu verið frestað eins og svo mörgu öðru. Í tilkynningu frá stjórnendum tískuvikunnar kemur fram að búast má við að...

Ný óléttubúð (1 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Nú er komin fín búð fyrir okkur óléttu konurnar sem viljum reyna að klæða okkur smekklega á meðgöngunni. Búðin er í Hlíðarsmára 17 í Kópavogi og heitir Thyme maternity, er í sama húsi og Allir krakkar. Ég veit að ég á eftir að kíkja þangað.

Innblástur (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Framleiðsla hafin, ég fæ sprautur í mig af andagift í gegnum hvítklæddar konur. Ekki heyrði ég svona vel í þér í gegnum vatnið í kjallaranum. Þú ert í formi innblástar en aðeins meðan ég er þur.

Söknuður meistara (7 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Meistari minn mátti ekki vera að því að hlusta á sögu mína af miðvikudegi. Ég sem reyndi að telja honum trú um það að andspænis sópransöngkonunni hefði verið tilgangsleysi sem enginn sá nema ég. Flestir vöknuðu upp af værum blundi þessa nótt sem rigningin kom. Hvað átti ég að gera til að lina kvalir þínar, ég reyndi mitt allra besta en þú vildir ekki tala um það en þess í stað baðst mig á brott að hverfa sem ég gerði með glöðu geði, guðslifandifegin að sleppa frá áráttu þinn um kynhegðun....

Hvað Karlmenn segja við konur og hvað þeir meina. (13 álit)

í Rómantík fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Við konur höfum oft verið að velta því fyrir okkur hvernig karlarnir okkar hugsa. Við höfum það oft á tilfinningunni að karlarnir hreinlega segi ekki það sem þeir meina heludr það sem þeir halda að við viljum heyra. Ég rakst á ansi skemmtilegar útskýringar á netinu eftir Jónas Sen um það hvað karlmenn virkilega meina þegar þeir segja hitt og þetta. Gjörið svo vel og skemmtið ykkur. “Ég elska þig” En það eru ekki bara þegar slíta á sambandi sem karlmenn nota einhverskonar merkjamál. Meira að...

Er Jolie ólétt??? (3 álit)

í Fræga fólkið fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Nú er heitasta slúðri í Hollívúdd það hvort að hjónakornin Angelina Jolie og Billy Bob Thornton eiga von á barni eða ekki. Það sást nefnilega til þeirra í barnafataverslun í Los Angeles um helgina og það náttúrulega býður upp á það að svona slúður fara af stað. En eins og flestir vita hefur Jolie skrifað undir samning að leika í Tomb raider 2 og samkvæmt samningi má hún ekki verða ólétt. Nú á þetta allt eftir að koma í ljós með tímanum en þetta er alls ekki í fyrsta skipti sem að slúður um...

Pitt og Aniston (13 álit)

í Fræga fólkið fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Nú vita sjálfsagt flestir að Brad Pitt var búin að gefa eiginkonu sinni Jennifer Aniston grænt ljós á að sofa hjá rokkaranum gamla úr Aerosmit Steven Tyler, ef henni gæfist þess kostur það er að segja. Hún hefur víst alltaf haft áhuga á kallinum þó að hann sé talsvert eldri en hún. En nú er annað komið upp hjá þeim hjónum og það er það að Jennifer hefur ákveðið að leyfa Brad að sænga hjá Michelle Phiffer ef kostur gefst á. Mér finnst þetta soldið undarleg pæling hjá þeim hjónum a leyfa svona...

Móðursýki (7 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég var svona að velta því fyrir mér í sambandi við verðandi mæður og móðursýki. Ég er nú ein af þessum verðandi mæðrum og er þetta mín fjórða ólétta en ég á þrjú fósturlát að baki. Seinast misti ég fóstur fyrir 3 árum og var það það sem kallast eftirlegufóstur, þ.e. að fóstrið deyr en allt heldur áfram eins og ekkert hefur í skorist nema hvað að þungurnareinkenni hverfa. Engir verkir eða blæðingar eða neitt sem gefur til kynna fósturlát nema kannski nokkrum vikum seinna þegar líkaminn hefur...

Skilaboð (1 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Getur einhver hjálpað mér aðeins, ég er sko nýr notandi. Málið er þannig að ég er með eitthvað að nýjum skilaboðum til mín en þegar ég ætla að opna þetta þá opnast bara fyrir egó. Ég er búin að reyna að tékka á þessu í hjálp en get með engu móti opnað fyrir þá síðu sem upplýsingarnar um skilaboðin og stillingarnar eru. Hvað segiði, vitiði eitthvað um þetta?

Förðun fyrir haustið. (15 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Mig langar að segja ykkur stelpur frá því hvað er það heitasta í förðun fyrir haustið (ég er föðrunarfræðingur). Augun: Það sem er heitast núna er rosalega sterk förðun sem kallast smoky. Það mætti segja að þessi förðun sé svona næstum því eins og frá því í gær og sé farin að renna svolítið til. Hvernig á að gera: Til að byrja með er notaður býantur, annaðhvort svartur eða brúnn en þá á ég ekki við þessa blýanta sem að við notum jú flestar heldur púðurblýanta. Gerðar eru línur eins nálægt...

Kötturinn minn albínóinn. (8 álit)

í Kettir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Mig langaði til að sýna ykkur hann Lilla heimilisköttinn. Hann er hreinræktaður síamsköttur og albínói í þokkabót og höfum við fengið þá staðfestingu frá nokkrum dýralæknum. Þetta er lang skemmtilegasti köttur sem að ég hef kynnst, hann er svo rosalega mikil týpa. Mig langaði til að vita hvort að einhver ykkar hafi komist í kynni við albínóakött því þetta er sá fyrsti sem að ég sé og ég hef átt marga ketti í gegnum ævina. Ég er búin að leita á netinu og í hinum ýmsu kisubókum en hvergi finn...

Nú er það svart (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Að sjá fyrir sér sjáöldur augna þinna þegar þú lýgur að mér, það er ein af mínum sérgreinum. Þegar þú loks getur horft á mig brosa þá fer ég frá þér. Í eðli mínu er ég sorgmædd og vil sjaldan spila á spil en þesss í stað skal ég með glöðu geði syngja. Þegar þreytan sest að í augunum og þau vilja lokast þá er um að gera að fylgjast grannt með rigningunni. Í hverra manna landi þekkja fjöllin mig með nafni? Hvar er það sem hafið vill í sífellu segja mér sögur sínar, nú ekki er það hér heldur í...

Svarti hundurinn og ég (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég klæði mig í rauðu skóna skóna sem flytja mig hvert sem er, en í þetta skiptið aðeins fram til dýranna. Ég drekk mitt kaffi þar til ég er orðin almennilega göngufær, þá þarf ég með svarta hundinn upp á spítala. Við þurfum bæði plástur, bæði ég og hann. Svo látum við læknirinn kyssa á báttið.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok