Getur einhver hjálpað mér aðeins, ég er sko nýr notandi. Málið er þannig að ég er með eitthvað að nýjum skilaboðum til mín en þegar ég ætla að opna þetta þá opnast bara fyrir egó. Ég er búin að reyna að tékka á þessu í hjálp en get með engu móti opnað fyrir þá síðu sem upplýsingarnar um skilaboðin og stillingarnar eru.

Hvað segiði, vitiði eitthvað um þetta?