Nú er heitasta slúðri í Hollívúdd það hvort að hjónakornin Angelina Jolie og Billy Bob Thornton eiga von á barni eða ekki. Það sást nefnilega til þeirra í barnafataverslun í Los Angeles um helgina og það náttúrulega býður upp á það að svona slúður fara af stað. En eins og flestir vita hefur Jolie skrifað undir samning að leika í Tomb raider 2 og samkvæmt samningi má hún ekki verða ólétt. Nú á þetta allt eftir að koma í ljós með tímanum en þetta er alls ekki í fyrsta skipti sem að slúður um barneignir hefur komist af stað, eins og margir muna er ekki svo langt síðan að einmitt Brad Pitt og kona hans Jennifer Aniston áttu að eiga von á barni en var það víst allt saman tilbúningur.