Ég klæði mig í rauðu skóna
skóna sem flytja mig hvert sem er,
en í þetta skiptið aðeins fram til dýranna.
Ég drekk mitt kaffi þar til ég er orðin
almennilega göngufær,
þá þarf ég með svarta hundinn upp á spítala.
Við þurfum bæði plástur,
bæði ég og hann.
Svo látum við læknirinn kyssa á báttið.