Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Ætlar þú að ferðast í sumar? (0 álit)

í Ferðalög fyrir 21 árum, 9 mánuðum

Hætti eftir fjögur lög (3 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Britney Spears sleit tónleikum sínum í Mexíkóborg á sunnudagskvöld eftir að hafa einungis sungið fjögur lög. Er fimmta lagið var að hefjast sagði hún: “Mér þykir það leitt Mexíkó. Ég elska ykkur. Bless.” Þvínæst gekk hún af sviðinu og stuttu síðar voru tónleikagestir beðnir um að yfirgefa salinn. Þetta kemur fram á fréttvef Reuters. Engar skýringar hafa fengist á þessu framferði söngkonunnar en við komuna til Mexíkó sást hún senda ljósmundurum, sem eltu hana, dónaleg fingramerki....

Claudia Schiffer á von á barni (1 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Þýska ofurfyrirsætan Claudia Schiffer á von á sínu fyrsta barni en hún gekk í hjónaband með breska kvikmyndaframleiðandanum Matthew Vaughn fyrr í sumar.,,Við getum staðfest að hún er ólétt og er komin meira en þrjá mánuði á leið. Matt og Claudia eru yfir sig ánægð með þetta,"sagði talsmaður fyrirsætunnar í London. Talsmaðurinn vildi ekki gefa neitt nánar upp um málið og sagði ekki nákvæmlega hversu langt Claudia, sem er 31 árs, væri gengin með barnið, að því er kemur fram á fréttavef Sky....

Julia Roberts ólétt (1 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Kvikmyndastjarnan Julia Roberts er sögð ólétt og myndir sem náðust af stúlkunni ýta undir þær kjaftasögur. “Hún er yfirleitt horuð en þarna var hún með stóra bumbu eins og hún sé ólétt,” sagði maður sem sá leikkonuna. Hin 34 ára gamla leikkona hefur átt vingott við Danny Moder og hefur reynt að fá hann til að skilja við konu sína Veru. Júlia sagði fyrir skömmu að hún vildi eignast heilan barnaskara. "Að eignast börn væri frábær g´jöf..

Skilnaðurinn stóð stutt (7 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Söngkonan Kylie Minogue og fyrirsætan James Gooding hafa tekið saman aftur eftir stuttan aðskilnað. Parið tilkynnti í síðustu viku að þau hefðu ákveðið að slíta tveggja ára sambandi sínu vegna anna. Nokkrum dögum síðar greindi Minogue frá því að hún hafi vitað að Gooding ætti vingott við aðrar konur á meðan sambandinu þeirra stóð og Gooding svaraði með því að tilkynna opinberlega að hann iðraðist þess sárlega að hafa látið “fegurstu konu heims” ganga sér úr greipum. Í kjölfarið ákváðu þau að...

Geri með lotugræðgi (3 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Geri Halliwell, kryddstelpan fyrrverandi, leitar sér nú hjálpar vegna bulimu eða loturgræðgi. Söngkonan skráði sig inn á Cottonwood de Tuscon heilsuhælið í Arizona, þar sem nóttin kostar litlar 65 þúsund íslenskar krónur, en þar leitar nú stuðnings eiturlyfjafíklar. Ginger Spice, eins og hún var kölluð´, hefur misst tug kílóa á síðustu árum en þegar hún söng með kryddstelpunum þótti hún í búttaðri kantinum. En þetta gerist svona hjá sumum sem eru að reyna að grenna sig en ganga og langt og...

Kylie kynþokkafyllri en Madonna (9 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Nigiel Goodall, höfundur bókarinnar um ævi Kylie Minogue, segir viðmælanda sinn vera kynþokkafyllri en sjálf Madonna. “Þótt hún ýti undir kynþokkan með dansi sínum er hún bara svo náttúrleg. MAdonna er það hinsvegar ekki og mér finnst það draga úr kynþokka hennar,” segir Goodall. HAnn segir að Kylie sé í raun og veru jafn góð og hún virðist vera og það sé lykillinn að velgengni hennar. “Kona sem er 33 ára myndi líklega vera talin of gömul til að vera poppstjarna en hún lítur svo vel út og er...

Kylie á lausu (1 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Ástralska söngkonan Kylie Minogue hefur sagt skilið við James Gooding, kærasta sinn til tveggja ára. Ástæðan ku vera sú að parið hefur lítinn tíma fyrir hvort annað vegna anna í starfi. Í yfirlýsingu sem Kylie sendi frá sér kemur fram að þau ætli að reyna halda vináttu sinni áfram. Fréttir af skilnaðinum gleðja þúsundir karlmanna sem hafa horft til hennar hýru auga. Kylie hefur þó sjaldan verið við eina fjölina felld en meðal fyrrverandi kærasta hennar er Michael Hutchence, hinn látni...

Ekki Lengur lítil og saklaus (4 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Britney Spears er ekki jafn saklaus og hún segist vera ef marka má orð Justin Timberlakes fyrrverandi kærasta poppgyðurnar. Hann segir þau hafa stundað kynlíf saman en Britney hefur margsinnis haldið því fram að hún sé hrein mey og ætli sér ekki að sofa hjá fyrr en hún gifti sig. Timberlake segir þatta allt tóma vitleysu og hún haldi þessu einungis fram til að auka vinsældir sínar. “Það er langt síðan hún missti meydóminn,” sagði Timberlake í samtali við hið ábyggilega tímarit The Sun. “ÉG...

R Kelly í vondum málum (16 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Lögfræðingar söngvarans R Kelly reyna nú í þriðja sinn að koma í veg fyrir að hann verði dæmdur fyrir að eiga mök við stúlku undir lögaldri. Lögfræðingarnir þurfa einnig að reyna koma í veg fyrir að piltur verði ákærður fyrir að hafa mök við tvær unglingsstúlkur. “R Kelly er enginn engill en hann er heldur ekki skrímsli,” sagði Gerry Margolis, lögfræðingur Kellys. “Síðasta kæran er bara byggð á lygum og við munum sýna fram á það.” R Kelly, sem heitir í raun Robert og er 33 ára, hefur neitað...

Söngvari Creed í bílslysi (0 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Hljómsveitin Creed hefur þurft að hætta við tónleika eftir að söngvari sveitarinnar, Scott Stapp, varð fyrir meiðslum eftir bílslys. Sveitin átti að spila í bænum Fargo í gær en þurfti að hætta vegna atviksins. Í fréttatilkynningu sem sveitin sendi frá sér slapp Stapp með skrekkinn en varð fyrir smá meiðslum á hné. Hann þarf því að hvíla það samkvæmt læknisráði.

Lisa Lopes jörðuð (0 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Eins og svo frægt er orðið lét Lisa “Left Eye” Lopes lífið í Hondúras í seinustu viku. Á mánudaginn var líkinu síðan siglt yfir til Bandaríkjana þar sem hún var síðan jörðuð. Mikið fjölmenni var viðstatt jarðsetninguna og þar á meðal eftirlifandi TLC meðlimir. Wanda Lopes móðir Lisu, vildi koma þökkum á framfæri til allra aðdáendana sem sendu fjölskyldunni samúðarkveðjur.

Enn lendir Moss í árekstri (0 álit)

í Fræga fólkið fyrir 22 árum
Breska ljósmyndafyrirsætan Kate Moss lenti í árekstri um helgina en bíl var ekið aftan á Mercedes 280SL bíl fyrirsætunnar. Moss, sem á von á fyrsta barni sínu í október, slapp ómeidd en bílinn er sagður mjög skemmdur. Moss lenti einnig í umferðarslysi í fyrra þegar ekið var á Range Rover bíl hennar. Þá axlabrotnaði Moss og var flutt á sjúkrahús í þyrlu.

Karlinn í tuglinnu og afturendi Lopez (1 álit)

í Fræga fólkið fyrir 22 árum
Mynd af afturenda leikkonunar og söngkonunar Jennifer Lopez verður varpað á tunglið. Um er að ræða auglýsingabrellu tímaritsins FHM. Að sögn talsmanns blaðsins verður ekki upplýst að sinni hvernig þetta verður gert en afturendi leikkonunar ætti að sjást víða á jörðinni. Aðdáendum Lopez er þó ráðlagt að skoða dýrðina í sjónauka.

J-Lo hugsar um eiginmenn sína (0 álit)

í Fræga fólkið fyrir 22 árum
Jennifer Lopez vil sjá um núverandi sem fyrrverandi eiginmenn. Fyrir skömmu hækkaði hún laun núverandi eiginmanns síns, Chris Judd, og gerði hann að listrænum stjórnanda hjá sér og nú hefur hún gert Ojani Noa, kúbönskum kokki sem hún var gift, að yfirmanni á veitingastað sem hún áþ Þau kynntust þegar þau unnu saman á veitingastað fyrir nokkrum árum. Það fylgir hins vegar ekki sögunni hvort hún sé búinn að finna starf handa P.Diddy eða Puff Daddy eða Sean Comb eða hvað hann nú heitir.

Um Ítalíu (2 álit)

í Ferðalög fyrir 22 árum
Getur einhveer hér sagt mér svolítið sem er nauðsynlegt að vita um ítalíu ég veit mikið um ítalíu, sko landið sjálft en er einhvað sem maður verður bara að sjá.

Draumur (0 álit)

í Ferðalög fyrir 22 árum
Segjum svo að þú mættir velja hvaða land, bæ eða þorp í heimi til að fara í hvaða land myndir þú velja, og af hverju. Sjálf myndi ég velja ítalíu ´það hefur alltaf verið draumur svo líka nýlega fékk ég áhuga á Ástralíu, en ef ég ætti að velja myndi það vera ítalía en hvað mundir þú velja!

Britney Spears og Justin deila út af smáræði (12 álit)

í Fræga fólkið fyrir 22 árum
Britney Spears og Justin Timberlake eiga nú í íllum deilum vegna hússins sem þau keyptu á meðan sambandinu stóð. Justin segir að hann hafi séð húsið, sem kostaði litlar 2 milljónir eða um 300 milljónir íslenskra króna, fyrst og því ákveðið að kaupa það. Britney segist hinsvegar hafa keypt það og nú eru lögfræðingar komnir í málið. Vinir parsins segjast óttast að rifrildin eigi eftir að magnast upp. Parið fyrrverandi keyptu húsið í febrúar árið 2001 þar sem þau hugðust giftast en sambandi...

Pamela og Rokk strákurinn trúlofast (2 álit)

í Fræga fólkið fyrir 22 árum
Pamela Anderson er búin að trúlofast Kid Rock. Hin 34 ára gamla leikkona, sem er víst ekki með sílikon í brjóstunum, sagði “JÁ” við strákinn þegar hann skellti sér á skeljarnar og bað hana að trúlofast sér. Brúðkaupsdagurinn hefur ekki enn verið ákveðin en parið hittist fyrst fyrir ári síðan á tónlistarhátíð sem VH-1 sjónvarpsstöðin hélt til heiðurs Arethu Franklin. Ef hjónabandið nær fram að ganga er það í annað sinn sem Pamela giftir sig. Hún var eitt sinn gift rokkaranum Tommy Lee úr...

Litla leyndarmálið hennar Beyonce (1 álit)

í Fræga fólkið fyrir 22 árum
Beyonce Knowles, úr Destinys Child, er víst ekki öll sem hún er séð. Hún er í raun að vera maður og ef einhver ætlar að abbast upp æá hana mun hún slá þann sama kaldann. Þessu heldur grínistinn Richard Blacwood, hálfbróðir Naomi Campell, fram í viðtali við The Mirror. Það er ekki gott að segja hvort maðurinn hafi eitthvað til síns máls en ef svo er má búast við að mörgum karmanninum sé brugðið.

Cruz og Cruise ekki hætt saman- hvar endar þetta (1 álit)

í Fræga fólkið fyrir 22 árum
Leikkonan snoppufríða Penelope Cruz segist þykja það leitt að fjölmiðlar fjalli ekki eins mikið um leik hennar í kvikmyndum eins og einkalíf hennar. Penelope er orðin ansi þreytt á yfirlýsingaglöðum fjölmiðlamönnum og segist ekki vera hætt með kærastanum sínum Tom Cruise. “Við erum ekki hætt saman, við erum ekki búin að gifta okkur og ég er heldur ekki ólétt.” Penelope sem tók nýlega saman við Tom eða þegar þau léku saman í kvikmyndinni Vanilla Sky staðfestir að hún sé mikið í Madrid þessa...

Liz Hurley laus við dóna (0 álit)

í Fræga fólkið fyrir 22 árum
Leikkonan Liz Hurley virðist nú loksins vera laus við dónan Petar Mihajlovic sem hefur verið að áreita hana undarfarið. Petar sem er 32 ára var að sniglast fyrir utan heimili Liz aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hún kom heim af fæðingardeildinni þegar hann var handtekinn. Fréttir af atburðinum eru óljósar en samkvæmt öruggum heimildum var Petar með læti fyrir utan heimili leikkonunar í Chelsea í desember síðastliðnum.

Britney grátbiður Justin um að koma aftur á hverju (17 álit)

í Fræga fólkið fyrir 22 árum
Aumingja litla moldríka Britney Spears er víst alveg í rusli yfir því að samband hennar við Justin Timberlake sé farið út um þúfur ef marka má gárungana í Bretlandi. Reyndar segja sögurnar að hún hringi hvert kvöld í kauða og grátbiður hann um að koma aftur og enda símtölin víst oftast á því að hún háskælir ofan í símtólið. Justin lætur greinilega ekkert snertast af tárum sinnar fyrrverandi og telur þau tvö ekki eiga neina framtíð fyrir sér saman.

Finnst lærin á Britney of þykk (15 álit)

í Fræga fólkið fyrir 22 árum
Hin einstæða en unga söngkona, Britney Spears, hefur eignast nýjan aðdáanda. Það er breski leikarinn Hugh Grant, sem telst nú ekki af verri endanum, þótt þekktur sé fyrir að nýta sér vændiskonur, og hefur heillað konur um árabil eða síðan hann lék í Four Weddings an A Funeral. Hann segist vera yfir sig heillaður af stúlkunni og mundi taka hana fram yfir Madonnu, ef hann þyrfti að velja á milli þeirra. “Ég elska þær báðar að sjálfsögðu,” sagði Grant,“En ef ég þyrfti að velja á milli þeirra...

Julia einhleyp á ný (4 álit)

í Fræga fólkið fyrir 22 árum
Leikkonan Julia Roberts er búin að skila kvikmyndatökumanninum Danny Meder og hann nú sagður grátbæna eiginkonuna Veru um að taka sig aftur í sátt. Þetta kemur fram í fréttaskeyti BANG Showbiz. “Það gekk bara ekki upp og Julia sagði honum að því væri lokið,” segir vinur Roberts. “Það ruglaði hann í rímunu að njóta aðdáunar glæsilegrar stjörnu á borð við Julia Roberts en hann sér núna að þetta voru mistök,” segir vinur Moders en kvikmyndatökumaðurinn er sagður líkjast Brad Pitt í útliti....
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok