Lögfræðingar söngvarans R Kelly reyna nú í þriðja sinn að koma í veg fyrir að hann verði dæmdur fyrir að eiga mök við stúlku undir lögaldri. Lögfræðingarnir þurfa einnig að reyna koma í veg fyrir að piltur verði ákærður fyrir að hafa mök við tvær unglingsstúlkur.
“R Kelly er enginn engill en hann er heldur ekki skrímsli,” sagði Gerry Margolis, lögfræðingur Kellys. “Síðasta kæran er bara byggð á lygum og við munum sýna fram á það.”
R Kelly, sem heitir í raun Robert og er 33 ára, hefur neitað ásökunum.
“Robert hefur orðið fyrir ýmsum ásökunum í gegnum tíðina og við höfum leyst það hljóðlega en nú er nóg komið.”
Patrice Jones segist hafa orðið ólétt eftir söngvarann þegar hún var 16 ára og að R Kelly hafi neytt sig til að fara í fóstureyðingu. Hún segist hafa átt í níu mánaða sambandi við R Kelly, en hann er giftur og á tvö börn.
HELLO!