Hin einstæða en unga söngkona, Britney Spears, hefur eignast nýjan aðdáanda. Það er breski leikarinn Hugh Grant, sem telst nú ekki af verri endanum, þótt þekktur sé fyrir að nýta sér vændiskonur, og hefur heillað konur um árabil eða síðan hann lék í Four Weddings an A Funeral. Hann segist vera yfir sig heillaður af stúlkunni og mundi taka hana fram yfir Madonnu, ef hann þyrfti að velja á milli þeirra.
“Ég elska þær báðar að sjálfsögðu,” sagði Grant,“En ef ég þyrfti að velja á milli þeirra myndi ég taka Britney. Hún er svo sérstök.” Grant er víst svo yfir sig ástfanginn að hann er að íhuga að kaupa risa ljósmynd af henni sem David LaChapelle gerði. Hann segir hana þó hafa einn djöful að draga og það eru þykk læri hennar. “Ég vildi að hún færi ekki svona oft á þrekhjólið. Hún er komin með alltof stælt læri.”
HELLO!