Þýska ofurfyrirsætan Claudia Schiffer á von á sínu fyrsta barni en hún gekk í hjónaband með breska kvikmyndaframleiðandanum Matthew Vaughn fyrr í sumar.,,Við getum staðfest að hún er ólétt og er komin meira en þrjá mánuði á leið. Matt og Claudia eru yfir sig ánægð með þetta,"sagði talsmaður fyrirsætunnar í London.

Talsmaðurinn vildi ekki gefa neitt nánar upp um málið og sagði ekki nákvæmlega hversu langt Claudia, sem er 31 árs, væri gengin með barnið, að því er kemur fram á fréttavef Sky.

Parið gifti sig þann 25. mai í enskri sveitakirkju nærri Coldham Hall, herragarði hjónanna, í þorpinu Lawshall í Suffolk. Viðstaddir brúðkaupið voru m.a. þýska tennisstjarnan Boris Becker og hönnuðurinn Valentino.
HELLO!