Leikkonan Julia Roberts er búin að skila kvikmyndatökumanninum Danny Meder og hann nú sagður grátbæna eiginkonuna Veru um að taka sig aftur í sátt. Þetta kemur fram í fréttaskeyti BANG Showbiz.

“Það gekk bara ekki upp og Julia sagði honum að því væri lokið,” segir vinur Roberts. “Það ruglaði hann í rímunu að njóta aðdáunar glæsilegrar stjörnu á borð við Julia Roberts en hann sér núna að þetta voru mistök,” segir vinur Moders en kvikmyndatökumaðurinn er sagður líkjast Brad Pitt í útliti.

Ástarlíf leikkonunar hefur lengi verið í sviðsljósinu. Árið 1991 hætti hún á síðustu stundu við brúðkaup sitt og Kiefer Sutherlands og stakk í kjölfarið af með besta vini hans Jason Patric. Tæpum tveimur árum síðar giftist hún sveitasöngvaranum Lyle Lovett eftir þriggja vikna samband en Lovett sagði eftir að hjónabandinu lauk að þau hefðu aldrei verið lengur saman en viku í senn. Á síðasta ári slitnaði síðan upp úr sambandi hennar við leikarann Benjamin Bratt en margir höfðu talið að í honum hefði hún loks fundið sér lífsförunaut.
HELLO!