Aumingja litla moldríka Britney Spears er víst alveg í rusli yfir því að samband hennar við Justin Timberlake sé farið út um þúfur ef marka má gárungana í Bretlandi.

Reyndar segja sögurnar að hún hringi hvert kvöld í kauða og grátbiður hann um að koma aftur og enda símtölin víst oftast á því að hún háskælir ofan í símtólið.

Justin lætur greinilega ekkert snertast af tárum sinnar fyrrverandi og telur þau tvö ekki eiga neina framtíð fyrir sér saman.
HELLO!