Pamela Anderson er búin að trúlofast Kid Rock. Hin 34 ára gamla leikkona, sem er víst ekki með sílikon í brjóstunum, sagði “JÁ” við strákinn þegar hann skellti sér á skeljarnar og bað hana að trúlofast sér. Brúðkaupsdagurinn hefur ekki enn verið ákveðin en parið hittist fyrst fyrir ári síðan á tónlistarhátíð sem VH-1 sjónvarpsstöðin hélt til heiðurs Arethu Franklin. Ef hjónabandið nær fram að ganga er það í annað sinn sem Pamela giftir sig. Hún var eitt sinn gift rokkaranum Tommy Lee úr Mötley Crue og eignaðist með honum tvö börn. Pamela smitaðist af lifrabólgu C þegar hún og Tommy fengu sér saman húðflúr og hefur verið í meðferð vegna þess. Tommy neitar því að hafa smitað eiginkonu sína fyrrverandi.
HELLO!