Britney Spears er ekki jafn saklaus og hún segist vera ef marka má orð Justin Timberlakes fyrrverandi kærasta poppgyðurnar. Hann segir þau hafa stundað kynlíf saman en Britney hefur margsinnis haldið því fram að hún sé hrein mey og ætli sér ekki að sofa hjá fyrr en hún gifti sig. Timberlake segir þatta allt tóma vitleysu og hún haldi þessu einungis fram til að auka vinsældir sínar.
“Það er langt síðan hún missti meydóminn,” sagði Timberlake í samtali við hið ábyggilega tímarit The Sun. “ÉG ætti nú að vita það manna best. ” Britney og Justin hættu saman í mars mánuði en þau hafa verið meira og minna á föstu frá því þau voru 12 ára.
HELLO!