Leikkonan snoppufríða Penelope Cruz segist þykja það leitt að fjölmiðlar fjalli ekki eins mikið um leik hennar í kvikmyndum eins og einkalíf hennar. Penelope er orðin ansi þreytt á yfirlýsingaglöðum fjölmiðlamönnum og segist ekki vera hætt með kærastanum sínum Tom Cruise. “Við erum ekki hætt saman, við erum ekki búin að gifta okkur og ég er heldur ekki ólétt.”

Penelope sem tók nýlega saman við Tom eða þegar þau léku saman í kvikmyndinni Vanilla Sky staðfestir að hún sé mikið í Madrid þessa daganna hjá fjölskyldu sinni en það þýði ekki að þau séu hætt saman.
HELLO!