Britney Spears sleit tónleikum sínum í Mexíkóborg á sunnudagskvöld eftir að hafa einungis sungið fjögur lög. Er fimmta lagið var að hefjast sagði hún: “Mér þykir það leitt Mexíkó. Ég elska ykkur. Bless.” Þvínæst gekk hún af sviðinu og stuttu síðar voru tónleikagestir beðnir um að yfirgefa salinn. Þetta kemur fram á fréttvef Reuters.

Engar skýringar hafa fengist á þessu framferði söngkonunnar en við komuna til Mexíkó sást hún senda ljósmundurum, sem eltu hana, dónaleg fingramerki. Tónleikarnir á sunnudag voru síðustu tónleikarnir hennar en ferðin er styrkt af Pepsi-fyrirtækinu.
HELLO!