Ástralska söngkonan Kylie Minogue hefur sagt skilið við James Gooding, kærasta sinn til tveggja ára. Ástæðan ku vera sú að parið hefur lítinn tíma fyrir hvort annað vegna anna í starfi. Í yfirlýsingu sem Kylie sendi frá sér kemur fram að þau ætli að reyna halda vináttu sinni áfram. Fréttir af skilnaðinum gleðja þúsundir karlmanna sem hafa horft til hennar hýru auga. Kylie hefur þó sjaldan verið við eina fjölina felld en meðal fyrrverandi kærasta hennar er Michael Hutchence, hinn látni söngvari INXS, og Jason Donavan. Hún hefur einng verið orðuð við menn á borð við Robbie Williams.
HELLO!