Söngkonan Kylie Minogue og fyrirsætan James Gooding hafa tekið saman aftur eftir stuttan aðskilnað.

Parið tilkynnti í síðustu viku að þau hefðu ákveðið að slíta tveggja ára sambandi sínu vegna anna. Nokkrum dögum síðar greindi Minogue frá því að hún hafi vitað að Gooding ætti vingott við aðrar konur á meðan sambandinu þeirra stóð og Gooding svaraði með því að tilkynna opinberlega að hann iðraðist þess sárlega að hafa látið “fegurstu konu heims” ganga sér úr greipum.

Í kjölfarið ákváðu þau að hittast og ræða málin yfir kvöldverði og þar munu þau hafa ákveðið að reyna aftur. “Um leið og þau sáu hvort annað gerðu þau sér grein fyrir því að sambandsslitin hefðu verið skelfileg mistök, ”segir vinur þeirra.
HELLO!