Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

zorglubb
zorglubb Notandi frá fornöld Karlmaður
4.002 stig
Áhugamál: Danstónlist, Ljóð, Kettir
—–

Yndislega eyja (5 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Yndi mitt mér birtist úr hafbláum mararfeldi berg þitt líkt og mögnuð list ljóssins endurskin af kveldi Í túnfæti sé þín fjöll og fugla sem þar búa um þig líkt og náttúrunnar guðsspjöll yrki og vil á þig trúa Ég eygi þig í fjarska eyjan mín og engist þar til stíg á jörð gras þitt og fjallasýn berg þitt og skörð Gísli Sjálfsagt er þetta ljóð ekki samið samkvæmt öllum reglum en mér þykir vænt um það og vil ekki breyta því.

Erótískar öldur (sorry, fann ekkert sniðugra nafn) (5 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Hún hreyfði sig eins og öldurnar í vatninu bylgjur liðu eftir líkama mínum og brotnuðu heitar á vörum mínum. Saltbragð af brjóstum hennar sem mýkri en dúnn ummynduðust eftir hörundi mínu. Ég synti í gegnum öldurnar andaði að mér unaðsangan hennar og kafaði djúpt. Eins og mannlegur þokulúður bergmálaði sæla hennar í hafbláu herberginu. Gísli

Ferðin heim (Vestmannaeyjar) (14 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þú birtist smátt og smátt úr hjúpi jarðar svört þúst sem enginn sá fyrir. Grænklæddir steinar á bláum feldi leirparadís úr barnungu hraunteppinu fjallasýn sem umvefur, bindur og byrgir sýn. Fljúgandi fuglar, prófastar, flugvélar fleytur á leið úr faðmandi kyrrðinni út í harða víðáttuna. Mýmargar línur stálþilja og steinsteypu þétt þyrping lifandi hvítra veggja sem bera samofinn dúk bárujárns. Flóð sálna eftir öskugráu malbikinu og ásjóna mín í spegilmynd á skítugri bílrúðu. Gísli

And-reykingafastistar!?! (184 álit)

í Hugi fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég reyki ekki og finnst þessi siður ekki til að bæta heilsuna eða útlitið á fólki en ég er eindregið á móti þeim sem reyna að gera reykingamenn að annars flokks þegnum með því að rakka þá niður í pressunni og elta þá eins og hunda eins og Þorgrímur Þráinsson fótboltakjaftæðisrithöfundarsorryassvitleysingur gerir af miklum móð með hálfgerðum fasistatilburðum. Í dag taka gildi þær reglur sem gera það óheimilt er að reykja á almannafæri. Hér er tekið svolítið djúpt í árinni, fínt er að banna...

North American XB-70 Valkyrie (3 álit)

í Flug fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Valkyrjan er sjálfsagt með dýrari tilraunum Bandaríska hersins og NASA til að smíða sprengjuvél sem kæmist á þrefaldan hljóðhraða. Árið 1959 var engin flugvél til sem náði slíkum hraða eða var af þeirri stærð sem verkefnisútboð sagði til um. Verkefnið komst lítið á skrið fyrr en 1964 þegar fyrsta vélin (eintak nr 2 reyndar, þrjú eintök voru plönuð, fyrsta eintak var fyrir loftgöng, þriðja eintak var aldrei smíðað vegna fjárskorts) var dregið úr flugskýli við mikla aðdáun áhorfenda sem höfðu...

Svefnleysi og vökudraumar. 1 og 2 (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
1. Klukkan á veggnum slær eitt, tvö, þrjú hjartaslög sem bergmála í herberginu og í huga mér. Loftið samlagast sjóndeildarhring er markast af fjallsveggjum fjórum sem umlykja. Öldurnar bylgjast í gluggatjöldunum og brotna hverjar á eftir annari á veggjunum sem skipta litum í flöktandi birtunni. Birtan síðan dofnar og deyr er ég slekk á sólinni og deginum. Slær hjarta mitt eitt, tvö, þrjú klukknaslög sem bergmála í huga mér og í herberginu. —- 2. Augu mín leita eftir rökkvuðu ljósinu á...

Tikk tokk tikk tokk - ( svefnleysi) (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Augu mín leita eftir rökkvuðu ljósinu á veggnum og að klukkunni sem vísum sínum dregur mig á asnaeyrunum hring eftir hring um tíma sem líður ekki áfram heldur stendur bara þarna og horfir hálf glottandi á mig með kortér í tvö svipnum sínum slær mínúturnar hátt og hvellt til að núna mér því um nasir að nóttin eigi eftir að verða hræðileg og löng. Ég reyndi ítrekað að drepa tímann en hann sleppur síknt og heilagt úr þreyttum örmum mínum og kemst úr dvínandi augnsýn. Nóttin bíður þarna úti...

Tikk tokk tikk tokk (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Klukkan á veggnum slær eitt, tvö, þrjú hjartaslög sem bergmála í herberginu og í huga mér. Loftið samlagast sjóndeildarhring er markast af fjallsveggjum fjórum sem umlykja. Öldurnar bylgjast í gluggatjöldunum og brotna hverjar á eftir annari á veggjunum sem skipta litum í flöktandi birtunni. Birtan síðan dofnar og deyr er ég slekk á sólinni og deginum. Slær hjarta mitt eitt, tvö, þrjú klukknaslög sem bergmála í huga mér og í herberginu.

Quatroformaggi - pastaréttur fyrir piparsveininn. (4 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þessi réttur er agalega einfaldur og fínn fyrir okkur strákana sem búa einir og kunna lítið að elda. Ath! fer alltaf eftir eigin smekk og eyra þannig að ég hef ekki hugmynd um það hve mikið fer í þennan rétt. Lærði hann af Ítölskum vini mínum Sósa: 1-2 Msk. Mascarpone rjómaostur 1-3 flísar af Gráðaosti Mossarella eða eitthvað því líkt, man ekki hve mikið Parmezan eftir smekk, helst nógu andsk. mikið =) Svartur pipar, nóg af honum. niðursneiddir tómatar úr dós, svona rúmlega helming af...

UFO´s = greinar hér (6 álit)

í Dulspeki fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Nafn greinarinnar segir sitt, eða jafnvel allt þar sem greinar hér á þessu áhugamáli eru jafn algengar og fljúgandi furðuhlutir sem svo margir þykjast nú hafa séð. Ég tek alls ekki fyrir það að geimverur séu til, eða að fólk nenni að skrifa greinar, en kannski mætti virknin aukast. Hvernig væri td að rífast svolítið um þær kenningar sem heimsins spekúlantar hafa hent fram. Erik von Daniken er td að mínu mati hálfgerður kjáni sem lætur ást sína á geimverum í textum biblíunnar leiða sig og þá...

Vopnaskak? (Svar til Johnson ) (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Flögrar frétt sem svín á flugi er leikar standa mest og hæst að leirburð mönnum minn ei dugi í huga mér vitið ei fæst Leit er að slíkum strák sem til vopna latur er sem hefur svo mjúkan skráp og sjaldan til bardaga fer En friðsæll er hann og sátt vill án þess að emja leirburðinn einn hann kann því vont er í bundnu að semja Gísli

Nakin ofurmenni (14 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Einn lítill regndropi fann sér leið í gegnum harðlokuð augnlokin og hann gretti sig, opnaði augun og pírði þau. Í fyrstu sá hann varla neitt en svo birtust húsþök og veggir út um allt í gegnum móðuna. Allt í kring voru illa málaðar blokkir með bárujárnsþökum sem þöktu þessar blokkir eins og permanent á rauðhærðri mellu. Himininn var sígarettuöskugrár og ætlaði næstum því að hrynja yfir jörðina. Hann stóð upp. Shit sagði hann upphátt. Hvar var hann eiginlega? Og hvað gerðist eiginlega í gær,...

Steikarpanna og flamberaður kúkur (11 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Eigi mátti eiturblys giftast vörum mínum því mamma sagði það óhollt En Che Guevara var kúl og ég vil líka Anda að mér ilminum Árum seinna hóstaðu taugaboðin visnuðu eins og amma og húð mín varð eins og gulur sætur ostur eins og á ömmu og reykurinn fór inn en ekki út aftur er ég hætti að draga endur eins og amma.

Vaskur (sem vitni að sjálfsmorði) (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Horfi á þig er þú horfir á sjálfan þig. Þú leggur á mig hendur, rautt regn fellur á mig er þú skerð þig og sneiðir burt það sem eftir gat verið af lífi þínu.

Bommi fer á kreik (varúð klámvísa) (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Steiktur stór og sterkur sífelldur höfuðverkur skelltásig spíra og jakkafötum niðrí bæ að leit´að götum fann loks eina, til í var hún hitnuðu þau strax og beint út á tún æstist þá leikur hátt hann stóð lýsti upp nágrennið ástarglóð. =o)

Árna úr alþingi takk! (56 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er engin þörf á því að útlista það sem Árni Johnsen hefur afrekað síðustu daga. Hvernig hann hefur skammlaust hellulagt heima hjá sér og smíðað á kostnað Þjóðleikhússins. Fordómar hans sem einstaklings eru hans eigin og koma málinu kannski ekki við, eða hvað? Er alþingismaður ekki forsvari þess landshluta sem kýs hann??? Hata allir sunnlendingar samkynhneigða? Varla. Þjófnaður og Lygar ættu ekki að viðgangast hjá mönnum kosnum af alþjóð. zorglu

Árni samur við sig?? (43 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þegar ég las grein um meint kaup Árna Johnsen á timbri í nafni Þjóðleikhússins fyrir kofan sinn út í eyjum þá hugsaði ég með mér: Hann er heimskari en ég hélt. En svo kom það á daginn að um mistök hafi verið að ræða, starfsmenn Byko höfðu merkt vörur hans í nafni þjóðleikhússins, sem Árni svo leiðrétti þegar hann tók við timbrinu. Jæja, gott og vel. En nú kemur upp úr kafinu að hann hefur keypt fleiri bretti af múrsteinum í nafni þjóðleikhússins og getur svo ekki gert grein fyrir því hvar...

Ísland hf ! (4 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Framtíðin ætti að vera svona: Íslandi er breytt í eitt allsherjarhlutafélag með þegna landsins sem hlutafjáreigendur. Ríkisstjórninni er slegið af, stjórnmálaflokkar aflagðir og Stofnuð Stjórn með aðilum völdum eftir verðleika og atorku en ekki frændsemi og pólitískum lit. Forsetisráðherra yrði Forstjóri. Allir landsmenn fá sama grunnarð sem eigendur fyrirtækisins en svo auka arð eftir mikilvægi starfs í þjóðfélaginu. Læknir fengi meira en strætóbílstjóri osfrv. Allar ákvarðanir er tengdust...

Rómantík, áhugamál!?! (8 álit)

í Rómantík fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það sem ég læt hér frá mér er auðvitað ekki annað en skoðun mín, ekki staðreynd. Rómantík er eitthvað sem er sjálfsprottið eða er eitthvað sem verður til með smá undirbúningi. En þegar farið er að gera þetta að áhugamáli og reyna að “búa til” rómantík með td. klisjum (rauðvín, kertaljós, ostar blah…) þá er rómantíkin dauð. Eins er þetta með önnur hughrif, td. húmor, reiði, gleði. Hversvegna ekki að búa til áhugamál um það?? Einhver sagði um húmorinn að hann væri eins og froskur, Hann hoppar...

Ljod.is - - Andvana fæddur vefur?!? (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Í desember í fyrra kom í Fókus lítil frétt um stórhuga mann sem var í þann mund að koma upp vef tileinkuðum ljóðagerð af öllu tagi, ljóð dagsins, umfjallanir, fréttir og fleira. Nú er liðið rúmt hálft ár og enn tekur við manni ekkert annað en afsökun í sambandi við seinkun á vefnum. Væri ekki sniðugt af manninum að selja lénið einhverjum öðrum sem hefði tíma og nennti að gera eitthvað í málinu?

Breiðholt - samið-á-staðnum ljóð (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég fer fetið upp brekkuna og sé blokkirnar hjúfra sig saman efst á hæðinni eins og marglitar múrsteinsmörgæsir horfandi með sínum óteljandi gleraugum á lífríkið fyrir neðan.

Átta bíó, samið-á-staðnum ljóð (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Borast fingurnir í stýrurnar í augunum sem bora áfram sínum taugaboðum að baki heilans sem vaknar loks og rennir niður sýningartjaldinu. Sýningarvélin fer hikstandi í gang og varpar á rykugt tjaldið mynd af hvítum vegg einni mynd og litlu borði út í horni. Áhorfandinn fylgist þreyttur með er hann stendur upp og gengur hægt um kvikmyndasalinn að næstu dyrum og opnar fram í stofu.

Núll og einn - samið-á-staðnum ljóð (5 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Ég átti stefnumót í gær gaf henni -.-^-{@ með þyrnum og kyssti hana létt á skjáinn. Hún tjáði mér hrifningu sína svo undurblítt, staf eftir staf og vildi geta séð mig í gegnum þennan talnaspegil sem við horfðum bæði á. Við elskuðumst þar til við fengum krampa í fíngurna lemjandi af losta á lyklaborðið. Heit, hjúfruðum við okkur að hvoru öðru eins og ástfangið núll og einn

Öldur (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum
Vagga mér öldurnar í svefn syngja fyrir mig vísu um sæfólk og sjávarguði sýna mér í hinsta sinn sólina sem kveður mig með hlýjum kossi áður en ég sofna. Vagga mér öldurnar og taka burt það sem særði mína sál skola burt hugsunum og hættum sem ei framar munu græta mig og hryggja. Vagga mér öldurnar í svefninn djúpa þar draumarnir enda aldrei og alltaf er hlýtt. Vagga mér öldurnar og enda mitt líf.

Guli drekinn (0 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum
Kaldur vindurinn reynir að mynda íshröngl úr tárum mínum er þau kreistast út undan andardrætti frá frystri rokhviðu og falla niður eftir lögmálum Newtons heitins. Við tekur hátt fall niður á grýtta jörð sem tekur af gömlum vana við öllu grugg vatninu er lekur af seigétnu malbikinu, er lekur af rauðgulum illa festum húsþökum sem bíða kvíðafull eftir hápunkti vetrar og komu appelsínuklæddra vera sem skjóta nýjum nöglum í járnið. Rigningar lyktin blandast við hlandfnyk úr horni strætóskýlisins...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok