Þú bauðst mér góða nótt með örbylgjuðum sms kossi er sló áfram hjarta mitt ótt, og títt sem í gegn blóð yrði að fossi. Ég hefði viljað hann alvöru, kossinn varir, augu, rödd þína en ég get beðið enn um sinn þó kvöl sé sönn og pína. Ég ligg hér og hugsa, hugsarðu eins? muntu mig í hjarta geyma? er angist mín ei til neins á ég að hætta um þig að dreyma? Ég vildi geta flogið með rokinu og regndropunum riðið Lagarfljótsorminn beinustu leið yfir landið og að þínum dyrum og bankað á gluggann þinn,...