Ég átti stefnumót í gær
gaf henni -.-^-{@ með þyrnum
og kyssti hana létt á skjáinn.
Hún tjáði mér hrifningu sína
svo undurblítt, staf eftir staf
og vildi geta séð mig
í gegnum þennan talnaspegil
sem við horfðum bæði á.
Við elskuðumst
þar til við fengum krampa í fíngurna
lemjandi af losta á lyklaborðið.
Heit, hjúfruðum við okkur að hvoru öðru
eins og ástfangið núll og einn
—–