Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

znarf
znarf Notandi frá fornöld 162 stig

Global Battle Of The Bands 2012 (0 álit)

í Músík almennt fyrir 12 árum, 1 mánuði
Undankeppni alþjóðlegu hljómsveitakeppninnar Global Battle Of The Bands hefst 13. mars 2012. Sigursveitin tryggir sér þátttökurétt í úrslitakeppninni sem haldin er 1 – 3 júní í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu. Til mikils er að vinna í aðalkeppninni því sigurlaunin eru að andvirði rúmlega 12 milljónir króna. Verðlaunasæti í undankeppninni á Íslandi veita meðal annars upptökutíma með hljóðmanni í stúdíóinu Punktur Punktur Komma Strik, tækifæri á framkomu á tónlistarhátíðum á Íslandi eins og t.d....

Jeff Buckley (21 álit)

í Músík almennt fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Í tilefni Jeff Buckley tónleikana í Austurbæ 29. maí er hér smá yfirlitsgrein um Jeff Buckley. Áhugasamir geta freistað gæfunnar með að fá miða á tónleikana og aðgang í eftirpartí með því að skrá sig sem vin á www.myspace.com/manzproduction Dregið verður föstudaginn 25. maí Jeff Buckley 1966 - 1997 Jeffrey Scott Buckley fæddist 17. Nóvember 1966. Faðir hans var tónlistarmaðurinn Tim Buckley og móðir hans Mary Guibert. Þrátt fyrir að hafa aðeins hitt föður sinn einu sinni var Jeff Buckley...

REYKJAVÍK FM 101.5 (20 álit)

í Rokk fyrir 17 árum, 1 mánuði
Tilraunaútsendingar Reykjavík FM eru hafnar á tíðninni 101.5 Útvarpsstöðin fer formlega í loftið í næstu viku með útvarpsþættinum Capone í umsjá Andra og Búa. Á gamlársdag 2006 tilkynnti Íslenska Útvarpsfélagsið að útvarpsstöðin XFM 91,9 myndi hætta útsendingum að beiðni eigenda. Dyggum hlustendum XFM var brugðið, enda hafði stöðin náð að festa sig í sessi í íslenskri útvarpsflóru og náð góðum árangri í hlustendakönnunum. Upp úr rústum XFM rís nýtt afl í útvarpi sem samanstendur af kjarna...

Panik í Reykjavík (2 álit)

í Danstónlist fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Panik PANIK The Electronic Music Party er haldið reglulega í Frakklandi við miklar vinsældir enda koma plötusnúðar heimshorna á milli til að skemmta á þessum klúbbakvöldum. Á Panik kvöldinu í Reykjavík munu erlendir listamenn skemmta og koma þeir sérstaklega hingað til lands í beinni tengingu við “showcase” tónleika hljómsveitarinnar Bang Gang í Listasafni Reykjavíkur 20. September n.k. Ef vel tekst til má ætla að Panik kvöldin geti orðið að reglulegum viðburði fyrir klúbbasamfélagið á...

Stórtónleikar Bang Gang (2 álit)

í Músík almennt fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Nú er loks komið að því að Bang Gang gefi út sína aðra breiðskífu í Evrópu, Something Wrong. Það er Recall í Frakklandi sem sér um útgáfuna í Evrópu en 21 12, menningararmur 1001 NÆTUR sér um útgáfuna hér á landi. Auk þess þá hefur Barði Jóhannsson forsprakki Bang Gang gert “publishing” samning við útgáfurisann EMI. Vinsældir Bang Gang hafa verið miklar í Evrópu og sem dæmi um mátt tónlistar Bang Gang þá hefur Georgia Armani keypt lag frá Bang Gang til að nota í nýjustu auglýsingaherferðinni...

Brainsími 2003 (9 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Í kvöld mun ferðalag Ensími og Brain Police hefjast. Þessi tvö rokkbönd hafa tekið höndum saman og ákveðið að skella sér á túr. Ensími hafa starfað í þónokkurn tíma og gefið út þrjár plötur, Kafbátamúsík (1998), BMX (1999) og Ensími (2002). Ensími eru einmitt að kynna þriðju plötu sína “ Ensími” um þessar mundir og munu meðal annars fara til Bandaríkjanna í mars til að spila á South By Southwest hátíðinni (www.sxsw.com)ásamt fleirum tónleikum. Brain Police voru sigurvegarar á...

Biðröð (33 álit)

í Battlefield fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Halló allir Vegna mikillar mæðu ákvað ég að pústa aðeins. Ég var að spila BF áðan í þrusu fíling en gafst algjörlega upp vegna tillitsleysis spilara. Í þau fáu skipti sem ég spawna á flugmóðuskipi kanna ég ávalt hverjir eru þar fyrir svo ég sé ekki að svindla mér í “flugvélaröðina”. Ef ég sé að margir séu um hituna þá dríf ég mig beint í landpramma. Áðan spawnaði ég þrjú skipti í röð á skipinu og í hvert einasta skiptið hlupu menn sem spawnuðu á eftir mér beint í vélarnar og svo burt. Þetta...

Ensími í góðum gír (3 álit)

í Músík almennt fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Jæja þá er hljómsveitin Ensími loksins búin að gefa út sína þriðju plötu. Þetta er 13 laga rokkskífa með rafstraumaáhrifum og er ótvírætt besta platan þeirra til þessa. Strákarnir eru í svaka stuði þessa dagana og hafa fengið til liðs við sig nýjan hljómborðsleikara til þess að þétta bandið ennþá betur á tónleikum. Þeir ætla að halda útgáfutónleika á fimmtudaginn næsta (14.Nóv)á Gauknum og er tilvalið fyrir alla alvöru tónlistaráhaggendur að láta sjá sig. Einnig er líf á vefsvæði...

Ókeypis lifandi tónlist (2 álit)

í Djammið fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Það er að skapast hefð fyrir lifandi músík á Sircus (Klappastíg) á miðvikudögum og í kvöld, miðvikudaginn 17. júlí, verður uppákoma þar sem Franz (Ensími) og Kristó (Vítamín) munu leika vinsæl dægurlög úr ýmsum áttum. Tónlistarmaðurinn Kofoed mun hleypa dagskránni af stokkunum með frumsömdu efni og mun leikurinn hefjast um 22:00. Það er öllum velkomið að kíkja við og að sjálfsögðu er ókeypis inn á Sircusinn.

Vítamínfjör á Cafe Amsterdam (2 álit)

í Djammið fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Hljómsveitin Vítamín mun leika á Cafe Amsterdam Föstudags og Laugardagskvöldið næsta. Hljómsveitin hefur verið iðin undanfarið við spilamennsku við góðan orðstír. Hljómsveitin leikur tökulög úr öllum áttum en sækir þó megnið af efniviðinum úr rokktunnunni. Strákarnir sem skipa hljómsveitina koma úr ýmsum þekktum hljómsveitum og munu þeir á næstu dögum bregða sér í hljóðver til að hljóðrita nokkur lög. Fjörið á Amsterdam hefst um 01:00 og stendur langt fram á morgun. Allir velkomni

Leikjatölvublaður (14 álit)

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Jæja Það er alltaf þreytandi að lesa svona kúk og piss pósta þar sem menn eru að metast um hvaða leikjatölvur eru góðar og hverjar ekki. Sem leikjaunnandi þá hef ég aldrei gert upp á milli tölvanna svo lengi sem LEIKIRNIR standi fyrir sínu. Umræðan hefur snúist dálítið um að Sega séu að hórast þessa daganna. Sega er einn ahrifamesti leikjaframleiðandi í heimi og allir leikjaunnendur ættu að vera fegnir að leikir fyrirtækisins eignist líf á öðrum tölvum en Dreamcast. Ég hef spilað á allar...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok