Hljómsveitin Vítamín mun leika á Cafe Amsterdam Föstudags og Laugardagskvöldið næsta. Hljómsveitin hefur verið iðin undanfarið við spilamennsku við góðan orðstír.

Hljómsveitin leikur tökulög úr öllum áttum en sækir þó megnið af efniviðinum úr rokktunnunni. Strákarnir sem skipa hljómsveitina koma úr ýmsum þekktum hljómsveitum og munu þeir á næstu dögum bregða sér í hljóðver til að hljóðrita nokkur lög.

Fjörið á Amsterdam hefst um 01:00 og stendur langt fram á morgun.

Allir velkomni