Jæja þá er hljómsveitin Ensími loksins búin að gefa út sína þriðju plötu. Þetta er 13 laga rokkskífa með rafstraumaáhrifum og er ótvírætt besta platan þeirra til þessa. Strákarnir eru í svaka stuði þessa dagana og hafa fengið til liðs við sig nýjan hljómborðsleikara til þess að þétta bandið ennþá betur á tónleikum. Þeir ætla að halda útgáfutónleika á fimmtudaginn næsta (14.Nóv)á Gauknum og er tilvalið fyrir alla alvöru tónlistaráhaggendur að láta sjá sig. Einnig er líf á vefsvæði Hljómsveitarinnar því nú er hægt að sjá videóið við lagið Brighter á heimasíðu þeirra www.ensimi.is ásamt því að heyra búta af nýju plötunni. Styðjum íslenskt og hlustum á landann.