Halló allir

Vegna mikillar mæðu ákvað ég að pústa aðeins. Ég var að spila BF áðan í þrusu fíling en gafst algjörlega upp vegna tillitsleysis spilara.
Í þau fáu skipti sem ég spawna á flugmóðuskipi kanna ég ávalt hverjir eru þar fyrir svo ég sé ekki að svindla mér í “flugvélaröðina”. Ef ég sé að margir séu um hituna þá dríf ég mig beint í landpramma.
Áðan spawnaði ég þrjú skipti í röð á skipinu og í hvert einasta skiptið hlupu menn sem spawnuðu á eftir mér beint í vélarnar og svo burt. Þetta er náttúrulega vandamál sem EA getur auðveldlega leyst og mun vonandi gera en þangað til vil ég benda mönnum á að ekkert er leiðinlegra en flugvélafrekjur í BF. Ég vil ekki vera með leiðindi en þetta er bara staðreynd.

Með von um betri spilun
Paunkholm