Jájá, ég er ekki að dæma þig fyrir neitt, að sjálfsögðu lætur maður þetta ekki fara svona viljandi, það er bara alltof algengt að þetta gerist hjá fólki þegar að það er ástfangið. Ég hef bara alltaf verið þannig að ég hef yfirleitt tekið vini mína fram yfir sambönd-sýnir kannski bara fram á vanþroska minn í þeim efnum…hehe…mér finnst bara vinirnir mikilvægari að því leytinu til að þeir munu alltaf verða til staðar fyrir mann í hverju sem gengur á svo framarlega sem að maður lokar ekki á þá...