Orð þín mín aftökusveit,
efinn í huga mér leit.
Þú lagðist í láréttan dans,
loforð þitt dó í örmum hans.

Þó hefndin sé huglausum næst,
þá held ég að við getum sæst
og byggt betra traust en nú,
beint frá grunni ég og þú.
“she's the tear that hangs inside my soul forever”. (Buckley).