SKAKKT NÚMER

Halló,
er Pétur heima?

Hér býr enginn Pétur,
svaraði Jesús.

Sorrý,
sagði Guð afsakandi,
skakkt númer.

Guð talaði til mín,
boðaði Kristur.