Andlitið lamað af kulda
Fann hvernig hver einasta taug skalf
og titraði undir klakagrímunni
Óttaðist að hún myndi bresta
Eftir að hann hvarf út og lokaði hurðinni
hrundi gríman í þúsund mola
Hún er enn að reyna að raða brotunum saman
Reynir að finna út mynd sem hún er sátt við