Þegar maður eins og ég er hefur verið svona vitlaus?
Búinn að vera í sambandi undanfarin 3 ár fyrir þann tíma var maður bara að vinna átti fullt af djamm félögum, góðum stelpu vinkonum og marga góða vini. En síðan gerist það óvart að maður minnkar djammið smá saman alltaf fjarlægist djamm félagana alltaf meira og meira síðan var kærustunni ekkert of vel við það að ég væri alltaf að hitta einhverjar vinkonur mínar þannig að ómeðvitað var maður líka farinn að minnka að hitta þær, vinirnir þeir sem ekki eru fluttir eitthvert eða komnir með konu og barn eru bara rólegir og ekkert vanir að hitta mann nema kannski eina og eina helgi svona inn á milli.
Það er ekkert henni að kenna að maður misti samband við alla svona það er sjálfum mér að kenna og einnig þegar maður hefur unnið vaktavinnu í 3 ár næturvaktir,kvöldvaktir og hefur ekkert gefið sér tíma til að gera mikið annað en eiða tímanum með kærustunni og svo vinnuni.

Hvað á maður svo að gera núna? Maður er að vinna og hættur með henni endanlega, hún flutt út og kominn með annan og ég sit eftir og veit ekkert hvað ég á að gera!
Hef alla þessa orku og langar rosalega að gera eitthvað þegar ég er í fríi en hef eiginlega engan til að hringja í þar sem maður var búinn að fjarlægjast alla svo mikið þannig maður situr heima langar rosalega til að gera bara eitthvað hvað sem er en með hverjum?

Þetta er það áhættusamasta við að lenda í svona sambandi að sumir þeir vitlausu útiloka sig frá þeim sem hann umgengst áður en hann lenti í þessu sambandi og svo þegar allt endar hvert á hann þá að snúa sér?
Ég segi bara Varúð passið ykkur að gera ekki sjálfum ykkur eða vinum ykkar það að setja allt á hakann vegna einhvers sambands því sama hversu mikið þið elskið hvort annað í dag eða hafið undanfarna mánuði þá er ekkert öruggt aldrei! Kannski kynnist þú einhverjum öðrum eða öfugt, kannski fáið það bara leið en vinina áttu alltaf ef Þú heldur lífi í sambandinu þá geturðu átt þessa vini alla æfi í staðinn fyrir eins og ég þarf að gera núna að fara reyna að endurjekja gamlan vinskap og það eru ekki allir eins tilbúnir að gerast bestu vinir strax aftur nú þegar maður er kominn á laust sérstaklega eftir að maður hafði minnkað svona gríðarlega mikið sambandið síðast þegar maður fór á fast þá er ekkert auðvelt að ávinna sér traust vinanna aftur!