Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tmar
tmar Notandi frá fornöld Karlmaður
3.172 stig

Re: Steikjandi Hiti

í Smásögur fyrir 23 árum, 12 mánuðum
ágæt saga…skemmtileg flétta…en líður fyrir hve lítið af myndum eru dregnar upp í henni….svo ekki sé nú talað um stafsetninguna….það verður að passa stafsetninguna…ég taldi 20 villur og hætti svo í miðjum texta…ég veit vel að það er leiðinlegt að heyra svona gagnrýni en maður á bara að koma í veg fyrir hana, því illa stafsett en góð saga nær ekki jafn miklu flugi, eins og hefði hún verið vel stafsett, því lesendur þínir munu taka eftir þessu. Sérstaklega þegar þetta eru svona margar...

Re: Hauskúpan

í Smásögur fyrir 23 árum, 12 mánuðum
nokkuð gott….svolítið stutt en alveg ágætt

Re: Lögleiðing fíkniefna.

í Deiglan fyrir 23 árum, 12 mánuðum
Heyr..heyr..bönnum allt saman…áfengi, sígarettur, kaffi, trúarbrögð, dans, sjónvarp, íþróttir, feitt kvenfólk….notum tækifærið meðan það gefst og verum eins mikill stóri bróðir og við getum….Lifi ríki talíbana!!! Og ég sem hélt að það væri löngu búið að afsanna allar slíkar kenningar…sýnir hversu vel maður fylgist með!!! Fíkniefnavandinn er heilbrigðisvandi, sbr. grein sem birtist í the Economist nýlega. Til þess að hægt sé að taka á vandanum þarf að lögleiða hann. Fíkniefni eru böl en það...

Re: Sagan mikla

í Smásögur fyrir 23 árum, 12 mánuðum
ég er kannski bara vitlaus…en ég næ bara ekki utan um svona bull og vitleysu…..

Re: Lærum smá sögu, hmm?

í Smásögur fyrir 23 árum, 12 mánuðum
Lipurlega skrifað en mér finnst enn sem að það vanti punchið. Smásögur eiga að koma svolítið á óvart, formið bíður upp á að skáldið vekji lesandann til umhugsunar, jafnvel með skell! Hvað, hvers vegna, hvar eru allt spurningar sem þarf að vekja upp, hitt er svo annað mál hvort að þeim sé svarað og hvernig!

Re: Nöldur.is

í Smásögur fyrir 23 árum, 12 mánuðum
Ég verð nú bara að taka undir það sem Z (fyrir Zorglúbb) er að halda fram. Ein helsta ástæða þess að hér ílengjast ekki hugarar er sú að á síðunni gerist lítið sem ekkert og þar af leiðandi er lítið um að sögur fái almennilega gagnrýni, jafnvel þrátt fyrir að þær hangi uppi jafnvel í viku. Aðalástæða þess að ég fer inn á td. ljóðasíðuna daglega er sú að þar er alltaf eitthvað nýtt að sjá, fyrir vikið verður síðan spennandi. Einnig má benda á það að þar fer fram yfirleitt nokkuð mikil og góð...

Nice one....

í Smásögur fyrir 23 árum, 12 mánuðum
nice one……nokkur atriði….vantar punchið! rekar endahnútinn á þetta…..(er gos í bjór!!?)…passa innslátt og uppsetningu….slíkt verður að vera 100% þegar á að gefa út!!!…í síðustu klausunni…tónlistin stoppaði…allt í einu þátíð, sem er í raun ekkert annað en stílbrot…ætti að vera tónlistin stoppar eða öllu frekar hætti að hljóma….að öðru leyti mjög fínt, talmálsblær og léttleiki spila vel saman en hefði viljað sjá aðeins meira af persónunum, þe. útlit oþh. ….

Re: Um stafsetningu og ljóðagerð

í Ljóð fyrir 23 árum, 12 mánuðum
Eins og ég sagði í greininni, ,,enginn er fullkominn" en hitt er alveg rétt, að maður á að vanda sig! :-)

Re: Limra

í Ljóð fyrir 23 árum, 12 mánuðum
OK!

Re: Limra

í Ljóð fyrir 23 árum, 12 mánuðum
sko…japanskar haika(ur) eru að forminu mjög svipaðar því sem þú telur upp en að efninu ertu ákaflega langt frá því. Allar haika(ur) eiga nefnilega að fjalla um árstíðirnar!!! Ekki um litla stelpu á bekk, so sorrý! Annars ortirðu lipurlega….er þetta annars ekki eftir þig?

Re: Limra

í Ljóð fyrir 23 árum, 12 mánuðum
er það svona hæka!…..svona eins og japönsk hæka!?….

Re: Tímaritið Fáfnir.

í Spunaspil fyrir 23 árum, 12 mánuðum
Æ…ég er búinn að vera að dúlla mér við að skrifa niður smá fantasíu sögu…….kannski að maður léti hana flakka

Re: Tímaritið Fáfnir.

í Spunaspil fyrir 23 árum, 12 mánuðum
mega greinar vera á ensku?

Re: Limra

í Ljóð fyrir 23 árum, 12 mánuðum
'Eg sem hélt að limrur væru 5 línur, fyrst 2 langar síðan 2 stuttar og að lokum ein löng……vitleysan sem er í manni!!!

Re: Fleiri admins?

í Smásögur fyrir 23 árum, 12 mánuðum
Ekki spurning….

Re: Opinn Míkrófónn

í Ljóð fyrir 23 árum, 12 mánuðum
Æ….það má vel vera að ég sé bara nöldurseggur og tuða út af smáatriðum, öllu gamni fylgir smá alvara, ekki satt!? …..en hitt er annað mál að það er rétt hjá þér að auðvelt væri að finna að orðinu Míkrófónn, en ég er ekki að býsnast út af einhverjum orðum, það er ósköp lítið hægt að gera við ágangi þeirra, en við orðasamböndum og þess háttar…. það er aftur á móti önnur spurning!?…. Þetta er án vafa enn eitt atriðið sem ég nöldra og kvarta yfir, er með einhverja besserwissa-stæla yfir osfrv.,...

Re: Mynd

í Ljóð fyrir 24 árum
JIBBÝ…..ég á ljóð dagsins á ljóð.is……djöfull er ég ánægður með það :-)

Re: Opinn Míkrófónn

í Ljóð fyrir 24 árum
hahaha….hver veit nema að ég geri það….open hefur reyndar aðeins víðtækarimerkingu í ensku en í íslensku, sbr. open minded oþh. orðasambönd. Slík orðasambönd er ekki hægt að þýða beint yfir í íslensku, opin huga!!?, heldur verður maður að gera sér grein fyrir merkingunni og ÍSLENSKA hana. Það er nefnilega stór munur á þýðingum og íslenskuðum textum. Ég nefndi þetta bara svona til að vekja mál á þessu atriði. Íslenskan á undir högg að sækja frá svona ,,léttum" þýðingum, þær virðast vera...

Re: Opinn Míkrófónn

í Ljóð fyrir 24 árum
Nú öskrar íslenskufræðingurinn í mér…..,,open mike" er góð og gild enska, en opinn míkrófónn er hræðileg íslenska. Væri ekki réttara að segja að míkrófónninn sé laus, frjálst hverjum sem er að fara í hann, ekki upptekinn eða í notkun. En opinn…..Æ, við sem eigum að heita skáld verðum að standa svolítin vörð um tungumálið sem við yrkjum á, þetta er jú vinnutækið okkar, ekki satt!

Re: SVONA

í Ljóð fyrir 24 árum
hihihi…..snilld….virkilega vel gert!

Re: Ljóðaljóð

í Ljóð fyrir 24 árum
ágætt…skemmtilegur hrynjandi….ágætt rím en vantar ljóðstafi….nafnið vísar reyndar í Ljóðaljóðin úr biblíunni, en mér virðast engin önnur tengsl vera…tilviljun?

Re: Fiðrildi

í Ljóð fyrir 24 árum
vel gert…skemmtilegt hvernig þú spilar saman svefni og að lifa…mjög flott..

Re: Gunnar Gunnarsson

í Bækur fyrir 24 árum
En hversu mikið fólk þekkir til Pilt og stúlku þá þekkja flestir þessa persónu og/eða hvað hún stendur fyrir. Þess vegna var farið að kalla ,,alla" slúðurbera Gróu á Leiti, sagan hafði slík áhrif í því samfélagi sem hún kom út í, þrátt fyrir að þessar persónur hafi verið frekar flatar og einlitar. En þær persónur lifðu meðal þjóðarinnar, rétt eins og Bjartur, Salka, Ólafur ljósvíkingur og umbi. Þetta er svolítið spurning líka um hvernig samfélagið tekur við þeim. Sögur HKL urðu mjög vinsælar...

Re: Viðkvæm mál !!!

í Hundar fyrir 24 árum
'Eg verð nú að viðurkenna það að ég hef fylgst með þessari umræðu og skemmt mér nokkuð vel. Það virðist mér að hér á þessari síðu sé ekki mikið um fullþroska einstaklinga. Sumir hafa látið eins og krakkar og verið dregnir á asnaeyrunum, látið æsa sig upp í einhvern eltingaleik, á meðan hinir láta eins og börn og draga suma á asnaeyrunum með órökstuddum dylgjum og bulli. 'Eg hef hlegið að þessu öllu saman því mér finnst þetta vera svolítið einkennandi fyrir þessa síðu/vefsvæði, þe. huga.is....

Re: Nóttin og ég.

í Ljóð fyrir 24 árum
vel gert…..einföld endutekning sem rammar inn ljóðið og myndmál þess….virkilega flott
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok