Jæja, mig langar bara svo mikið að nöldra. nú hefur cosmo ekkert komið inn á hugi.is í þrjá daga og spurning hvort hann komi fyrir þessa helgi. Ég hef séð það að á mörgum þeim áhugamálum sem ég hef kíkt inná, eru tveir eða fleiri admins. Sem er fínt mál og tryggir stöðugt flæði í áhugamálinu, svo er auðvitað undir okkur smásöguhöfundum komið að halda lífi í því með því að dæla inn sögum af mikilli íþrótt =)

Ég vil taka það fram að ég er ekki að skjóta á þig Cosmo, heldur benda á hugmynd að umbótum. Þú hefur staðið þig vel sem admin þegar þú hefur verið hérna, en stundum lætur þú ekki sjá þig marga daga í senn.
—–