Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tmar
tmar Notandi frá fornöld Karlmaður
3.172 stig

Re: VANTAR ADVENTURE!!

í Spunaspil fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég held að öll Volos serían sé á Wisard.com en er ekki viss um hordes …. það hefur verið illfáanlegt í mörg ár….mættir athuga shared hubana…dettur einna helst það í hug…auk þess er hægt að kaupa þetta notað á amazon held ég og í einhverri rpg online verslun, það er linkur af wizards.com…

Re: Hve langt mega ummæli Davíðs ganga?

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég hef aldrei sagt nokkuð Samson, Baugi eða þessum einstaklingum til bjargar eða reynt að bera hlífiskjöld yfir gjörðum þeirra. Enda tel ég ekki að umræðan snúist um það. Heldur snýst hún um DO og ummæli hans. Eiga þau rétt á sér? Er þetta hræsni? Erum við tilbúin að sætta okkur við svona forsætirráðherra? Þess vegna spyr ég hver viðbrögð ykkar/þín væru ef dæmið væri omvendt. Og ég held að þetta snúist ekki um flokka eða persónur, heldur um ummælin og hversu miklu við eigum að kyngja, sætta...

Re: Spilamót?

í Spunaspil fyrir 22 árum, 3 mánuðum
góð spurning

Re: Hve langt mega ummæli Davíðs ganga?

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þannig ef Össur/ISG/Steingrímur myndi ráðast gegn MBL, uppnefna það Sjálfstæðistíðindi og kalla alla fréttamennina þar hægri sinnaða, augljóslega á mála hjá Sjálfstæðisflokknum, sem ritstýrir öllum fréttum…..án þess að nefna eitt dæmi máli sínu til stuðnings, væri þér alveg sama…því Össur/ISG/Steingrímur hefðu rétt til þessa í krafti stöðu sinnar…. Ja, hérna….

Re: Hve langt mega ummæli Davíðs ganga?

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Undansláttur! Svaraðu spurningunni. Hver hefðu viðbrögð þín verið ef dæmið hefðu verið á áðurnefndan hátt?

Re: Hve langt mega ummæli Davíðs ganga?

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
ok…allt í lagi…en þú svarar ekki seinni spurningunni!

Re: Hve langt mega ummæli Davíðs ganga?

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Já, en má ekki bara búast við því? Hann er jú forsætisráðherra! En þetta með að svara fyrir sig….af hverju ætti hann að hafa gera það? Er það þessari stöðu sæmandi? Að forsætisráðherrann sé að leggjast svo lágt, aftur og aftur, að hann vera í drullukökukasti við einhverja menn út í bæ, sem ættu að öllu jöfnu ekki að skipta hann neinu máli? Ef að Sverrir Hermannsson, Össur eða Steingrímur ættu í hlut hver væri afstaða ykkar þá? Væri það annað? Mættu þeir, sem PM, segja það sama og DO? Mynduð...

Re: Hve langt mega ummæli Davíðs ganga?

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Já, en má ekki bara búast við því? Hann er jú forsætisráðherra! En þetta með að svara fyrir sig….af hverju ætti hann að hafa gera það? Er það þessari stöðu sæmandi? Að forsætisráðherrann sé að leggjast svo lágt, aftur og aftur, að hann vera í drullukökukasti við einhverja menn út í bæ, sem ættu að öllu jöfnu ekki að skipta hann neinu máli? Ef að Sverrir Hermannsson, Össur eða Steingrímur ættu í hlut hver væri afstaða ykkar þá? Væri það annað? Mættu þeir, sem PM, segja það sama og DO? Mynduð...

Re: Hve langt mega ummæli Davíðs ganga?

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Smá leiðrétting….hugsunarvilla :P…..Mér finnst DO hafa sýnt valdhroka og hafa EKKI verið samkvæmur sjálfum sér….

Re: Hve langt mega ummæli Davíðs ganga?

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Til að byrja með langar mig til að leiðrétta þann misskilning að ég sé flokksbundinn eða harður Samfylkingarmaður. Ég er sem sagt hvorugt. Ég er hins vegar kröfuharður og ein af þeim kröfum sem ég set fram í garð alþingismanna er að þeir séu samkvæmir sjálfum sér og sýni ekki valdhroka. Mér finnst DO hafa gert hvorutveggja. Og það sem mér finnst verst er, að mjög mörgum er alveg sama, því það bitnar ekki á þeim. En hvað ef það myndi bitna á ykkur? Ég er ekki að halda því fram að einhver...

Re: Hve langt mega ummæli Davíðs ganga?

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Nú sat ég sjálfur og hlýddi á tölu Björns nokkurs Bjarnasonar niður í vinnu. Þar talaði hann um skattalækkanir myndu koma fram strax á næsta þingi. Svo varð ekki. Sel það ekki dýrara en þetta. En menn segja svo sem hvað sem er í kosningabaráttunni. Ég held að ef þú ræðir við öryrkja, sérstaklega forystumenn þeirra þá kemstu að raun um að sá samningur sem að þeir og Jón Kristjáns höfðu gert var ekki virtur, þó að miklar bætur hafi verið gerðar á þeirra málum. En þetta, eins og svo margt annað...

Re: Hve langt mega ummæli Davíðs ganga?

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Sleipnir: Mig langar til að benda þér á hver seldi Björgúlfi Landsbankann….Davíð Oddsson. Mig langar líka til að benda þér á hver það var sem gerði Baugsfeðgum kleift að sinna sínu viðskiptum á þennan hátt sem þú kvartar svo undan: …Téður Davíð Oddsson. Þú talaðir um að ISG hefði svikið loforð. Hvað varð um skattalækkanirnar sem að DO lofaði? Hvað með samning þeirra og öryrkja sem DO og félagar í D sviku? Þú vinur minn ættir að fara að eiginn ráði: Opnaðu augun! Í stað þess að ráðast á...

Re: Hve langt mega ummæli Davíðs ganga?

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það er stórkostlegur munur á því að segja skoðanir sínar og því að vera með rógburð. Ég ætla ekki að halda því fram að DO hafi verið sekur um ærumeiðandi ummæli. Hins vegar hlýtur hverjum gagnrýnum og hugsandi manni að sýnast hann hafa stigið yfir strikið nokkrum sinnum á síðasta ári. Það er nefnilega ekki hvað hann segir, heldur samhengið og hræsnin. Hann kvartar yfir kaupaukasamningum Búnaðarbankastjóra, en á sama tíma semur hann drög að eigin starfsloka-'kaupauka'. Á meðan er verið að...

Re: Hvernig á ég að ná fram Roleplay

í Spunaspil fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það eru til margar leiðir til að komast hjá power-playerum. Sú leið sem hefur hentað mér einna best er tvíþætt. Annars vegar nota ég meira af skillum en combat actions, og ef þeir eru mikið munchkin hækka ég bara DC'ið á skillunum. Tölurnar eru nefnilega ekkert annað en verkfæri, þær eru ekki heilagar og skapa ekki persónur. Þær setja persónum takmörk og þegar menn eru mikið fyrir powerplay er það oftast á þann hátt að þeir maximiza einn part persónu sinnar (súper str, súper int osfrv.) en...

Re: Undirbúningur fyrir session

í Spunaspil fyrir 22 árum, 4 mánuðum
All in due time, my friend, all in due time!

Re: Undirbúningur fyrir session

í Spunaspil fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Jamms….ég er einn af þeim sem skipulegg ævíntýrin mín í þaular. Ég er reyndar búinn að DM'a í tíu ár, reynslan hefur kennt mér eitt og annað, auk þess sem lestur útgefinna ævintýra getur verið mjög fræðandi. Ég set upp vondu karlana á character sheet, þeir verða fyrir mér meira lifandi og eftir því sem að líður á campaignin hef ég látið þá fá XP og svo framvegis. Þetta gefur þeim meira líf auk þess sem það virkar raunverulegt. Varla áttu þér erkióvin sem aldrei fær XP, sama hversu mikið...

Re: Varðandi könnun

í Spunaspil fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Mér dettur ekki til hugar að spila neinn þannig. En hvað er gaman við það að byrja 1st lvl persónu sem er þunglynd, drykkjusjúk og í sjálsfmorðshugleiðingum? Varla nennir maður að spila slíka persónu oft. Auðvitað eiga persónur að endurspegla manninn í heild sinni, en svona alvarlegar geðraskananir eru sjaldgæfar og leggja yfirleitt líf þeirra sem þurfa að burðast með þær í rúst. Allir hafa sína galla og enginn er fullkominn…galli getur verið ofmat á eigin gæðum, trúleysi eða eitthvað slíkt....

Re: Varðandi könnun

í Spunaspil fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Í þessu hefur að vissu leyti rangt fyrir þér. Þegar maður er að spila þá vil ég helst gleyma því í eitt augnablik að ég er mannlegur, fæ að leika ‘ofurmenni’ í eitt kvöld. Ég færi vísvitandi aldrei að láta persónur mínar vera þunglyndar, sociopaths, cannibals eða hvað annað, nema að eitthvað í spilinu sjálfu byði upp á það. Segjum að persóna mín myndi upplifa það að sjá fjölskyldu sína myrta af orkum (mjög klassískur bakgrunnur), þá er alls ekki ólíklegt að hann/hún muni mynda einhverjar...

Dumb-ass-fuck!!!!

í Spunaspil fyrir 22 árum, 4 mánuðum
You can't see it…..but right now, I'm hitting myself in the head with a stick….with a nail in it…rusty nail….who has been recently licke by a rat with mutliple diseases and viruses….deadly viruses….so deadly I wonder why the fuck I'm hitting myself with it…then again…I'm just a Dumb-Ass-Fuck!!!! ;) ;)

Re: Gísla saga Súrssonar

í Bækur fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Mikið er gaman að sjá hvaða umfjöllun þessi saga fær. Það er greinilegt að kennarar í grunnskólum eru að vinna vinnuna sína. Þessi saga er mjög merkileg og það fyrir þó nokkrar sakir. Í henni birtast mun dýpri og flóknari persónulýsingar en í mörgum Íslendingasögum. Þorkell er ímynd tækifærissinnans á meðan Gísli er ímynd hetjunnar er ávallt gætir sæmdar ættarinnar og ver heiður sinn og ættmenna sinna út í rauðan dauðann. Inn í hana spila síðan fleiri eftirminnilegar persónur, Eyjólfur og...

Re: Víg Vésteinns

í Bókmenntir og listir fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Reyndar er það ljóst að Þorgrímur hefur vegið Véstein. Hann var sá eini er sat fullklæddur er þræll Gísla fór yfir til að tilkynna morðið. Auk þess þá gefur Þorkell honum vísbendingu er þeir öttu kappi í ísknattleiknum, er hann biður Gísla að spara sig hvergi við Þorgrím. Þar að auki viðurkennir Þorgrímur næstum vígið er hann segir: Geir í gumna sárum gnast, kannkat þat lasta. Þó að það sé ekki sagt beinum orðum þá er lesanda ljóst að Þorgrímur er hinn seki. Ég tel að hrifning Auðar hafi...

Re: Api er með einu p-i, btw .

í Spunaspil fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Einmitt í þessu svari þínu felast miklu meiri fordómar en ég ætla að þú gerir þér grein fyrir. Lesblindir geta vel skrifað almennilega íslensku, þetta er ekki eins og að vera einfættur (sem er fötlun) heldur er þetta sjúkdómur (eins og krabbamein). Það er hægt að vinna á þessu og læra að lesa vel og stafsetja. Það krefst talsverðar vinnu, mun meiri en við hin sem erum ‘frísk’ þurfum að leggja á okkur. Þá einmitt á maður ekki að leggjast í þunglyndi eða hanga í tölvunni, heldur einmitt að...

Re: Lesblinda

í Spunaspil fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það var enginn að ræða um viðkomandi einstakling, heldur sjúkdóminn í heild. Lesið svörin áður en þið hlaupið upp til handa og fóta.

Re: Lesblinda

í Spunaspil fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég lít nú ekki á þetta sem skítkast, því ég ræddi hvergi um stafsetningu greinarhöfundar né gerði lítið úr honum sem slíkum. Það hefði verið skítkast. Hins vegar impraði ég á furðu minni yfir þessum sjúkdóm og hversu algengur hann er orðinn. Ég tel mig hvorki hafa farið yfir velsæmismörk né gert á neinn hátt lítið úr viðkomandi eða þeim sem eru haldnir honum. Hins vegar setti ég fram áhyggjur mínar yfir því hversu margir virðast vera komnir með þennan sjúkdóm og ræddi það. Það er rétt hjá...

Re: Dragon lance og adrar stúderingar (D&D 3E)

í Spunaspil fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ekki greint…kunni ekki að greina það…Ok… Ég veit reyndar ekki um gildar samanburðarrannsóknir, en ég held að hægt sé að fullyrða að meðal eldri borgara finnist afskaplega lítil lesblinda. Hins vegar er meðal ungs fólks, undir tvítugu, óvenju hátt hlutfall. Það hefur kannski aldrei komið fram, en þessi sjúkdómur er lítið sem ekkert þekktur. Við þekkjum afleiðingarnar og reynum eftir fremsta megni að koma í veg fyrir þær, en orsökin er óþekkt (nema í tilfelli ‘litalesblindu’…þar geta...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok