Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tmar
tmar Notandi frá fornöld Karlmaður
3.172 stig

Re: Dragon lance og adrar stúderingar (D&D 3E)

í Spunaspil fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Er lesblinda orðin einn stærsti sjúkdómur á Íslandi? Miðað við hversu margir á huga.is eru lesblindir þá hljóta um 45-50% þjóðarinnar að þjást af þessum sjúkdóm. Áður fyrr var þetta kallað leti, að nenna ekki að læra að stafa rétt. Hugsið ykkur það….þá voru ekki jafn margir lesblindir….td. hlutfall lesblindra á meðal fólks sem er komið yfir sextugt er afskaplega lágt, í dag eru þetta 2-3 í hverjum bekk…..ég segi nú ekki annað en þetta: Öllu er nú gefið nafn!

Re: Call of Cthulhu

í Spunaspil fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Góð hugmynd….mig dauðlangar til að spila Cthulhu á nýjan leik…

Re: D&D á íslensku; Ævintýra- og Campaign gagnabanki

í Spunaspil fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Vanti þig orð yfir hin ýmsu heiti í D&D mæli ég með lestri Íslendingasagna. Vanti þig nöfn eru Eddukvæðin stútfull af álfa, dverga og mannanöfnum, sem dæmi. Það að þurfa annað tungumál til að komast í karakter….úff, ég gæti haldið góða tölu um það, en læt þetta duga: Úff! Vissulega er það svo að það eru mörg heiti óþýðanleg, en ég held að enginn spili 100% á íslensku, enda væri það erfitt verk og langsótt. Hins vegar er íslensk okkar eigið móðurmál og við eigum hvergi jafn auðvelt með að...

Re: Call of Cthulhu

í Spunaspil fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Svaka fjör?

Re: D&D á íslensku; Ævintýra- og Campaign gagnabanki

í Spunaspil fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Það væri gaman að heyra hvað stjórnarmenn Spuna hafa um þetta að segja…

Re: D&D á íslensku; Ævintýra- og Campaign gagnabanki

í Spunaspil fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég hef enn ekki séð House of Strahd í 3rd, en ég geri ekki ráð fyrir að það sé erfitt. Það er töluvert síðan statar fyrir Strhd voru gefnir út og vel flest þau skrýmsl sem er að finna í Castle Ravenloft er einnig að finna í 3rd ed. Kastalinn hefur ekkert breyst, þá er bara eftir að hagræða og lagfæra gildrur…þá ætti allt að vera tilbúið. Plottið ætti ekki að þurfa mikilla lagfæringa við, ef nokkurra.

Re: Abigel og tmar

í Smásögur fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hvað mig varðar, þá er ég ekki einn um tölvuna og hún er stillt á að logga sig inn ef hugi er opnaður, þannig að þrátt fyrir að notendanafn mitt sé inni, er ekki víst að ég sé hér sjálfur. Auk þess þá er ég að fara inn í tímabil þar sem ég verð mjög upptekinn og auglýsi hér með eftir einhverjum til að taka við af mér.

Re: Sverðnérðir

í Spunaspil fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég verð bara að segja að þetta framtak finnst mér hrein snilld….húrra fyrir ykkur!

Re: hneiksli

í Spunaspil fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Maður tuðar UM e-ð….nei, bara svona datt í hug að benda á þetta í tilefni umræðunnar :)

Re: Af hverju skrifið þið?

í Smásögur fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég skrifa af því að ég hef gaman af því.

Re: Ágætis byrjun....

í Spunaspil fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Tek ofan fyrir aðstandendum mótsins. Vel haldið utan það og stemningin til fyrirmyndar. Ég skemmti mér mjög vel og ég hlakka til að koma á næsta mót. Húrra fyrir Spuna!!!

Re: Hvað er í gangi varðandi mótið?

í Spunaspil fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Sjálfur ætla ég að stjórna á mótinu en hvet alla til að mæta. Þessi mót eru mjög skemmtileg og það er ósjaldan sem manni gefast tækifæri til að prufa ný kerfi og hitta aðra spilara. Það er í rauninni skylda að mæta, sérstaklega á þetta mót þar sem að nýtt spunaspilsfélag verður stofnað….

Re: Amfetamín

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Rímið í þessu ljóði er of þvingað fyrir minn smekk….þegar ljóðskáld eru farin að breyta orðaröð til þess eins að finna orð sem rímar og getur staðið aftast, þá er rímið farið að tapa tilgangi sínum. Í stað þess að binda ljóðið inn í fallegan ramma, þá hengir rímið ljóðið í snöru meðalmennsku og þaðan af verra. Slepptu ríminu og leyfðu ljóðinu að njóta sína frjálst….

Re: Hverju bíttar það?

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Takk og sömuleiðis… MBK, Tma

Re: Hverju bíttar það?

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það sem ég er að reyna að koma til skila er, að sama hversu hart er barist gegn þessu þá mun málið sjálft velja og hafna. Í dag heyrir maður unglinga, allt að 17-18 ára gamla tala um að býtta. Þetta er þeim tamt, þetta er þeirra málheimur. Það er enginn að tala um að breyta þínum, en er það ekki frekja af okkur að ætlast til að þau noti sama orðaforða og við? Þegar allt kemur til alls, þá nota þau orðin sem þau eru vön og koma fyrst upp í huga. Sama má segja um þig og mig. Ég nota aldrei...

Re: Hverju bíttar það?

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þú segir: Þó orðið sé notað í talmáli og jafnvel bókum er það ,strangt til tekið, ekki góð og gild íslenska. Eftir því sem ég best veit, þá kom talmálið á undan bókmálinu. Það talar enginn íslensku eins og hún er skrifuð, bæði með hliðsjón af orðavali og setningarskipan. Rétt eins og orð á borð við Shit! og Fuck!, hefur þessi sögn öðlast gildi innan íslenska málkerfisins. Hvers vegna að neita henni sem gildri íslensku, sökum þess að hún á uppruna sinn í dönsku? Ef að við hugsuðum öll svona,...

Re: Hverju bíttar það?

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Kunni Laxness ekki stafsetningu? Jæja, já….þarna held ég að ég hafi misst allt álit á þér, því ef að þú heldur það þá ertu ekki alveg jafn klár og þú heldur að þú sért. Enginn íslenskur höfundur hafði sömu tök á málinu og hann. Þar að auki stafsetti hann hárrétt í sínu fyrstu bókum en breytti svo út af stafsetningunni eftir því sem líða tók á. Laxness var gríðarlega vel lesinn, Íslendingasögur, Eddukvæði og þjóðsögur, hann las allt sem hann náði í. Þetta var einn besti þýðandi sem við höfum...

Re: Hverju bíttar það?

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Reyndar er orðið bíti til, og merkir snemma morguns. Hins vegar ræða börn oft um að bítta í merkingunni að skiptast á einhverju, þannig að sögnin er góð og gild, en notuð vitlaust hérna….en er það ekki tilgangur höfundar? Að gera lítið úr málinu… Hverju bíttar það svosem? Og hvaða máli skiptir að ég komi ekki einusinni mínum ljóðum á framfæri vegna slæmrar stafsettningar? Já, hverjum er ekki sama?

Re: Spilamót - spurningar og svör.

í Spunaspil fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hvernig er húsnæðið? Er þetta einn stór salur eða er hægt að hólfa þetta eitthvað niður?

Re: Gos

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
ég er bara að æfa mig í notkun myndmáls….tek fyrir hugtak og bý til fjöldan allan af ljóðum um það, reyni að nota hugtakið á eins víðan hátt og mögulegt er…

Re: Spilamót - spurningar og svör.

í Spunaspil fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það væri mjög fínt…. Hvernig er það annars, er enginn möguleiki á að spila yfir nóttina?

Re: Spilamót - spurningar og svör.

í Spunaspil fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Er einhver möguleiki að það sé hægt að birta nöfn DM'a um leið og þau berast ásamt upplýsingum um kerfi, heim, level og þau skilyrði sem DM'inn setur?

Re: Jarðeldur

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
sekond!!?

Re: Hjartalaga piparkaka

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hvað er framandi?

Re: Draumsamband

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ágæt ljóð en bragfræðilegri úrvinnslu ábótavant. Það þarf td. alltaf að standa stuðull í síðustu hákveðu: Nú er úti Veður vont…. Syng guði dýrð, syng drottni Þökk, vor þjóð… Það var eitt sinn hundur, Horaður og ljótur Yfir kaldan Eyðisand Þér tekst það oftast en þó eru á því misbrestir. Þegar þú ert að ríma máttu ekki nota sama rímið tvisvar; draumar, straumar, draumar… hrynjandin er ekki nógu fastur, þarft að gera upp við þig þegar þú ert að nota svona fast form hvort að þú ætlar að enda á...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok