Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tmar
tmar Notandi frá fornöld Karlmaður
3.172 stig

Re: harmleikurinn 11. sept. í herb. 323

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hvernig er hægt að hafa mikið gullfiskaminni? Eru það ekki aðallega tölvur sem hafa mikið minni? Just a thought…

Re: KRAFTURINN

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Sniðug pæling! Tvær spurningar: Af hverju heitir ljóðið KRAFTURINN? Hver er pælingin með r-leikinn? Þetta er sniðugt, en einhvern veginn heyri ég meira í B þegar það er bankað….bank, bank…kannski varstu ekki að leita eftir því að mynda svona hljóðtengsl, eins og Hannes Hafsteins gerði oft meistaralega…þess vegna næ ég ekki tengslum við r-ið…að öðru leyti en því sem Solufegri hefur bent á. Eitt til viðbótar….þegar maður er ÖRþreyttur..er líklegt að maður hafi kraft til þungra högga???

Re: Stelsýki

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ágætis ljóð. Það er þó eitt sem mig langar til að finna að: Þegar ljóðstafir eru notaðir, þá finnst mér fara betur á því að nota þá alls staðar, eða í rétt blá lokin, til áhersluauka. Hér notarðu þeytti, þeim og síðan þvera. Þetta kemur mér svolítið spánskt fyrir sjónir. Kannski ertu að reyna að brjóta hefðina…

Re: Spilamót - spurningar og svör.

í Spunaspil fyrir 22 árum, 8 mánuðum
hvernig gengur skráning stjórnenda?

Re: Varðandi gagnrýni hér a ljóð!

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
hahaha….get ekki annað sagt en að ég hafi glott út í annað… Þvílík dauðasynd að nota orðið maður sem fornafn tvisvar í sömu málsgrein. Ja, hérna megin…þetta jaðrar við nástöðu….ekki satt, að hafa sama orðið í sömu merkingu svo nálægt hvort öðru. En slík mistök gerir Cocobana ekki, er það nokkuð? En hitt má hún eiga, að ókurteist er óþjált og flokkast seint sem fallegt mál. En að það sé ótækt og ónothæft….það er allt annar handleggur….enda er ég svo sem ekkert að fara yfir þessi svör mín...

Re: Varðandi gagnrýni hér a ljóð!

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég er heldur ekki að draga úr þeim skilaboðum þínum. Eins og ég sagði í upphafi, þá er ég sammála því að það sé ekki sniðugt að traðka ungskáld í svaðið í öfgakenndri rýni. Það verður að vega hvert ljóð út af fyrir sig og meta það án tillits til þess er hefur komið áður frá viðkomandi höfundi. Það er jú ljóðið sem á að rýna, ekki ferill höfundar. Ég er bara að benda á, að mér finnst að hér megi höfundar allir sem einn leggja sig meira fram um að nýta ljóðið betur. Ekki henda bara einhverju á...

Re: Varðandi gagnrýni hér a ljóð!

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Er þetta ljóð? Mér líður illa Allir hata mig ég vona að ég deyji bráðum. Ég er á því að þetta sé dæmi um tilfinningadagbók en ekki ljóð. Ég finn ekki til með þeim sem segir þetta. Miðlunin felst í því að ég finn þá tilfinningu sem verið er að lýsa. Þú nefndir ‘Dagbók Önnu Frank’. Lestu bókina, þá skilurðu af hverju hún er svona fræg, hún er EKKI tilfinningadagbók. Það er ekki af því að hún er svo yfirburða vel skrifuð, langt í frá, heldur vegna þess um hvað hún er. DÖF er ekki fræg vegna...

Re: Varðandi gagnrýni hér a ljóð!

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það er reginmunur á dagbók og miðlun. Álíku munur á því að sýna og segja. Ef að þú skilur ekki þann mun, þá skal ég glaður útskýra það fyrir þér. Í dagbók birtast hugrenningar um liðinn dag: Ég fór í bæinn og sá svo flotta peysu. Á ég að kaupa hana? Palli er enn hrifinn af Sillu. Mér líður geðveikt illa yfir því. Í þessu er allt sagt, þetta skilur ekkert eftir hjá lesandanum. Það er ekki boðið upp á neina túlkun og notkun tungumálsins er svo einföld að það jaðrar við barnaskap. Þegar...

Re: Varðandi gagnrýni hér a ljóð!

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég hef nú ekkert verið alltof aktívur undanfarið, en ætla samt að blanda mér í þessar umræður. Ég tek það fram að hér ætla ég að viðra skoðanir mínar og móðgi ég einhvern, þá er það svo sem ekki ætlun mín, en biðst samt ekki afsökunnar. Það eiga allir rétt á sínum skoðunum og því að koma þeim á framfæri. Til að byrja með nefnir Gribba réttilega að oft megi orðalag í rýnum vera tillitsamara. Rýnir þar sem hreinlega er vegið að höfundum, gáfnafari þeirra og slíku eru óþarfar og ekki til neins...

Re: ASkur

í Spunaspil fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Var það gefið út?

Re: star wars-Jabba the hut

í Sci-Fi fyrir 22 árum, 8 mánuðum
The hutts tala bara eitt tungumál, þe. sitt eigið í myndunum. Varðandi fituna…ætli hann eigi bara ekki við offituvandamál að stríða…væri það ekki einföld og þægileg útskýring

Re: ASkur

í Spunaspil fyrir 22 árum, 8 mánuðum
ævintýrið Auga Mímis???

Re: Chicuacua...eitthvað

í Hundar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
En hvað kemur það málinu við? Hver veit nema að hún eigi eftir að eignast æðislegan tjúa, sem á eftir að veita henni mikla ástúð og ánægju í mörg ár? Ætlar þú, með þína fordóma og fávisku, að eyðileggja það, af því að þú taldir það siðferðislega skyldu þína að útmála tegundina sem leiðinlega og geltna umfram aðrar tegundir? Tjúar gelta EKKI meira en aðrir hundar, allir hundar gelta (fyrir utan Basenji), það fer eftir einstaklingunum, ekki tegundinni, hvort þeir gelta lítið eða mikið. Þú ert...

Re: Chicuacua...eitthvað

í Hundar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Og ef að þú veist ekki mikið um svertingja þá mega ALLIR segja álit sitt á þeim…. Mikið er gaman að heyra svona frambærileg rök. Hún var EKKI að biðja um álit þitt á þeim, hvað gagnast það henni að heyra einhverjar staðreyndalausar skoðanir einhverja misvitra einstaklinga út í bæ?

Re: Chicuacua...eitthvað

í Hundar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ef að hún hefði spurt: ég hef heyrt að svertingjar séu fljótir að hlaupa, er það satt? hefðir þú þá svarað: Mér finnst allir svertingjar tala of hátt, en það er sko bara mín skoðun…..?

Re: Chicuacua...eitthvað

í Hundar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mikið er nú gaman að sjá svona mikið af björtu og gáfuðu fólki saman komið á einum stað. Það hreinlega rignir hér inn gáfumolunum og gullkornunum. Ég held að það sé bara efni í heila bók. Ég held, kæra fólk, að ég hafi sjaldan orðið vitni af jafn miklu bulli og hér hefur komið fram. Þvílíkir fordómar og hálfvitaskapur. Hér kemur einstaklingur sem spyr einfaldra spurninga, um hvort að ákveðin hundategund sé mannelsk og hvort að það séu til undirtegundir af mexíkóskum smáhundum. En ég fæ ekki...

Re: Smá hugmynd fyrir nýja spunaspilsfélagið

í Spunaspil fyrir 22 árum, 9 mánuðum
ekki svo galin hugmynd

Re: Andvaka

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þó svo að það sé margt ágætt í þessu ljóði, þá finnst mér tilraunir höfundar til stuðlunar eyðileggja það….bara því miður!

Re: Tölvuleikir og pabbarnir!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Æ, þið bara virðist vita svo mikið um svona sambandsmál og allt, þannig að mér datt í hug að spyrja. Ein spurning í viðbót: Sko, kærasta vinar míns, sem er ekki alveg kærasta hans heldur bara stundum þegar hann nennir og hún vill að hann gisti og…æi, málið er svo flókið að ég nenni ekki að útskýra það…hún skrifaði svona grein á opinn vef og var að kvarta undan honum eða öllu heldur því sem hann var að gera og er að gera, hvað á ég að segja við konuna mína um það að hún vilji ekki þvo...

Re: Tölvuleikir og pabbarnir!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Groupie: Ætli líklegra sé ekki að þú hafir hætt með drengnum af því að hann er svoddan hrokagikkur að hann neitar að horfast í augu við eiginn galla, jafnt nú sem þá?

Re: Tölvuleikir og pabbarnir!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Groupie: OK. Ég heyrði einu sinni af manni sem hafði ekið yfir kött og sá eftir því. Tenchi og Missmilla: Hvað hefði konan hans átt að gera?

Re: Tölvuleikir og pabbarnir!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
ibbets: Stór stafur í uphafi setninga, komma á undan/eftir ávarpsorðum og nöfnum, punktur/upphrópunarmerki/spurningarmerki í enda setningar. Þar af leiðir ætti rétt stafsett setning að líta svona út: Teach me, professor! Missmilla: ég er að verða 25 ára.

Re: Tölvuleikir og pabbarnir!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Sko…ég er eiginlega svona kærasti sem er kúgaður af konunni minni, hún neyðir mig til að vera í fótbolta og hanga í tölvunni og ég gjörsamlega hata það. Þetta er algert helvíti. Svo var ég einu sinni með stelpu og ég hætti með henni. Ég á líka tvo hunda sem eru alltaf að rífast og ég get ekki sofið út af því. Missmilla og Tenchi: Hvað á ég að gera? ibbets: Lærðu að stafsetja!!! MBK, Steini :)

Re: BANNA TRA

í Smásögur fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er búinn að láta Abigel vita að hún eigi ekki að samþykkja greinar eftir hann og ég hef látið vefstjóra vita af þessu.

Re: Enginn fékk Laxnessverðlaunin !

í Smásögur fyrir 22 árum, 10 mánuðum
hehe…nei, nei, ég veit bara til þess að hann ætlaði að senda inn handrit og hann var búinn að leggja þó nokkra vinnu það…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok