Nei, sjáðu til: Ég sé að Britney er ósköp góð í að gera það sem hún gerir, og að tónlistin hennar sé góð. En mér þykir hún ferlega leiðinleg. Svipaða sögu má segja um Steve Vai; hann er góður gítarleikari (og mjög góður, meira að segja), en alveg hryllilega leiðinlegur. Svona má halda áfram og áfram. Það er munur á góðri tónlist og skemmtilegri. Annað er nokkuð hlutlægt, á meðan að hitt er algerlega huglægt. Þetta er eins í flestum, ef ekki öllum listgreinum, t.d. menn geta verið afar færir...